Friðþóra og Patrik í ástarfríi á Spáni

Það væsir ekki um kærustuparið á Spáni!
Það væsir ekki um kærustuparið á Spáni! Samsett mynd

Tón­list­armaður­inn Pat­rik Atla­son, bet­ur þekkt­ur sem Pretty­boitjok­ko, og kær­asta hans, Friðþóra Sig­ur­jóns­dótt­ir, virðast ekki hafa neinn áhuga á að vera í haust­veðrinu á Íslandi og skelltu sér því í sól­ríkt ástar­frí til Spán­ar. 

Friðþóra hef­ur verið dug­leg að birta töfr­andi mynd­ir úr frí­inu, en parið hef­ur notið þess að borða góðan mat og fylla á d-víta­mín byrgðirn­ar fyr­ir vet­ur­inn. 

Af mynd­um að dæma hafa Pat­rik og Friðþóra notið sól­ar­inn­ar á lúx­us­hót­el­inu á Mar­bella und­an­farna daga, en hót­elið er hluti af Nobu hót­elkeðjunni sem er þekkt fyr­ir að leggja ríka áherslu á góða mat­ar­gerð, stíl­hrein her­bergi og lúx­us yf­ir­bragð. 

Lét um­deild um­mæli falla í út­varp­inu

Pat­rik hef­ur verið áber­andi í sviðsljós­inu að und­an­förnu, en hann hef­ur slegið ræki­lega í gegn sem tón­list­armaður. Hann var einnig meðstjórn­andi þátt­ar­ins Veisl­an á FM957 ásamt Ágústi Bein­teini Árna­syni, eða Gústa B, en þátt­ur­inn var ný­verið tek­inn af dag­skrá vegna um­mæla sem Pat­rik lét falla í þætt­in­um. 

Í kjöl­farið sendi Pat­rik frá sér yf­ir­lýs­ingu á In­sta­gram þar sem hann baðst af­sök­un­ar á um­mæl­un­um sem hann lét falla í þætt­in­um. Þá bað hann Gústa einnig af­sök­un­ar. 

Fé­lag­arn­ir virðast báðir hafa flúið haust­fíl­ing­inn á Íslandi, en Gústi er stadd­ur á Teneri­fe ásamt kær­ustu sinni, Haf­dísi Sól Björns­dótt­ur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert