Urðu fyrir vonbrigðum með Bláa Lónið

Bláa Lónið er vinsæll ferðamannastaður.
Bláa Lónið er vinsæll ferðamannastaður. mbl.is/Árni Sæberg

Banda­ríski ferðahand­bóka­höf­und­ur­inn og sjón­varps­maður­inn Rick Steves gaf ný­verið út sjón­varpsþátt um Ísland þar sem hann keyr­ir hring­inn í kring­um landið og heim­sæk­ir hina ýmsu út­sýn­is­staði, nátt­úruperl­ur og nátt­úru­laug­ar. 

Með Steves í þætt­in­um er Ca­meron Hewitt, sem hef­ur skrifað nokkr­ar leiðsögu­bæk­ur með hon­um, en Hewitt skrifaði færslu á Face­book-síðu sinni á dög­un­um þar sem hann seg­ir frá von­brigðum sem þeir urðu fyr­ir með Bláa Lónið. 

„Fyr­ir nýja þátt Rick Steves um Ísland langaði okk­ur að taka upp í Bláa Lón­inu. Frægu hraun­heilsu­lind­ina sem er ferðamanna­tákn Íslands. En við vor­um óviss: Þó að Bláa Lónið sé ógleym­an­leg upp­lif­un, þá er það líka af­skap­lega dýrt og nán­ast ein­göngu sótt af ferðamönn­um,“ seg­ir Hewitt í færslu sinni. 

„Í leiðar­vísi okk­ar um Ísland út­skýr­um við að flest­ir Íslend­ing­ar sleppi þess­um fínu „premium“ heilsu­lind­um og fari í staðinn í al­menn­ings­sund­laug­ar – hitaðar af nátt­úru­leg­um hver­um, jafn heit­ar og Bláa Lónið, skemmti­legri og gagn­virk­ari, fyr­ir u.þ.b. einn tí­unda af verðinu,“ bæt­ir hann við og út­skýr­ir að í upp­hafi hafi þeir ætlað að taka upp á báðum stöðum til að sýna úr­val val­kosta á Íslandi.

„En Bláa Lónið reynd­ist vera mest tak­mark­andi staður­inn á list­an­um okk­ar. Þegar þeir loks­ins svöruðu fjöl­mörg­um beiðnum okk­ar um leið höfðu þeir (skilj­an­lega) áhyggj­ur af friðhelgi einka­lífs viðskipta­vina sinna sem hefðu borgað sig ofan í lónið. Þess vegna gæti Rick aðeins verið í einu fjar­lægu horni Bláa Lóns­ins, girt af og í eng­um sam­skipt­um við aðra baðgesti,“ skrif­ar hann. 

Varð heilluð af Árbæj­ar­laug­inni

Steves og Hewitt höfðu líka ákveðið að taka upp í laug í út­hverfi Reykja­vík­ur og varð Árbæj­ar­laug fyr­ir val­inu, en í færsl­unni seg­ir hann laug­ina hafa verið í mestu upp­á­haldi af öll­um laug­un­um sem þeir prófuðu á svæðinu.

„Við kom­una í laug­ina var ljóst að við vor­um einu ferðamenn­irn­ir í sund­laug­inni – ekki bara þenn­an dag, held­ur mjög lík­lega alla vik­una. Það var til­valið til að sýna þenn­an ein­staka flöt ís­lensk mann­lífs: Í stað þess að fara á hver­fiskrána eft­ir vinnu til að safna sam­an vin­um og vanda­mönn­um, koma Íslend­ing­ar sam­an í sund­laug­un­um,“ skrif­ar hann. 

Hewitt lýs­ir upp­lif­un­inni í Árbæj­ar­laug sem skemmti­legri, en þar hafi þeir rætt við heima­menn, séð krakka renna sér niður renni­braut­ir og upp­lifað ís­lenska sund­laug­ar­menn­ingu beint í æð í grenj­andi rign­ingu. 

„Með allt þetta dá­sam­lega sam­spil á filmu áttuðum við okk­ur á að við þyrft­um ekki að sýna Rick dá­sama Bláa Lónið eft­ir allt sam­an. Við erum ekki á móti prívat aðdráttar­öfl­um; við erum frek­ar tals­menn ferðalanga og reyn­um að búa til efni sem gef­ur þeim til­finn­ingu fyr­ir val­mögu­leik­un­um svo þeir geti tekið bestu ákvörðun­ina fyr­ir þeirra tíma og fjár­hag,“ bæt­ir hann við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert