Nú getur þú gist í Polly Pocket-húsi

Húsið er tilvalið til að halda skemmtilegt partí.
Húsið er tilvalið til að halda skemmtilegt partí. Skjáskot/Airbnb

Ein­hverj­ir muna ef­laust eft­ir Polly Pocket-leik­föng­un­um sem slógu ræki­lega í gegn í kring­um alda­mót­in. Nú geta þeir upp­lifað al­vöru nostal­g­íukast og bókað gist­ingu í risa­vöxnu dúkku­húsi í anda Polly Pocket. 

Húsið, sem er í borg­inni Littlet­on í Massachusetts í Banda­ríkj­un­um, er nýj­asta viðbót­in á bók­un­ar­vef Airbnb og var hannað í til­efni af 35 ára af­mæli Polly Pocket. 

Gúmmíföt og lit­rík snyrtiaðstaða

Húsið hent­ar vel til veislu­halda og býður upp á al­vöru Polly Pocket-upp­lif­un. Í fata­skáp húss­ins hanga dúkku­föt í raun­stærð sem gest­ir geta mátað, en föt­in eru nauðalík frægu gúmmíföt­un­um sem Polly Pocket-dúkk­urn­ar voru klædd­ar í. 

Þegar gest­ir hafa mátað öll föt­in og fylgi­hlut­ina í fata­skáp­un­um er svo til­valið að fara upp á aðra hæð húss­ins og prufa snyrtiaðstöðuna sem er hlaðin lit­rík­um snyrti­vör­um. 

Síðan er ómiss­andi að næla sér í fersk­an drykk í dúkku­bolla áður en gengið er út í garð þar sem meðal ann­ars má finna úti­legutjald sem gest­irn­ir gista svo í eft­ir ógleym­an­legt nostal­g­íu­partí. Airbnb mun opna fyr­ir bók­an­ir 21. ág­úst næst­kom­andi.

New York Post

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert