Aftengdi sig á gömlu eyðibýli í Jökulfjörðum

Á Kvíum er ekkert símasamband og því algjör aftenging frá …
Á Kvíum er ekkert símasamband og því algjör aftenging frá umheiminum. Ljósmynd/Instagram
Anna Fríða Gísla­dótt­ir var á miklu flakki í sum­ar með fjöl­skyldu sinni, bæði hér á landi og á er­lendri grundu. Hún seg­ir eft­ir­minni­leg­asta fríið hafa verið að fara til Kvía í Jök­ulf­irði þar sem það er al­gjör af­teng­ing frá um­heim­in­um. Anna Fríða er trú­lofuð Sverri Fal Björns­syni, hag­fræðingi. Þau eiga tvo drengi, Björn Helga og Jó­hann Krist­inn.
„Kví­ar er af­skekkt­ur staður í Jök­ul­fjörðum þar sem amma manns­ins míns ólst upp og höf­um við, ásamt tengda­fjöl­skyldu minni, gert okk­ur ferð þangað nokkr­um sinn­um und­an­far­in sum­ur. Húsið var orðið að eyðibýli þar til það var gert upp fyr­ir nokkr­um árum af Bor­ea Advent­ur­es, ferðaskrif­stofu á Ísaf­irði og er nú notað sem aðset­ur fyr­ir ferðafólk á þeirra veg­um,“ seg­ir Anna Fríða.
„Þar erum við í kyrrð og ró í nokkra daga í senn, al­gjör af­teng­ing, því þar er ekki einu sinni síma­sam­band. Dag­arn­ir fara í að rölta um fal­lega nátt­úr­una, elda tíma­frek­ar máltíðir, spila sam­an og henda sér í guf­una og sjó­inn til skipt­is.“

Skyndi­ferð til Kaup­manna­hafn­ar góð hug­mynd

Hún seg­ir hvíld og sum­ar­frí með fimm og tveggja ára drengi ekki beint eiga sam­an. Hún hafi samt farið í skyndi­lega vin­konu­ferð til Kaup­manna­hafn­ar snemm­sum­ars sem fyllti vel á gleðibank­ann. 
„Ann­ars vor­um við fjöl­skyld­an mikið sam­an í sum­ar og fór­um meðal ann­ars í viku­ferð til Riga. Riga er frá­bær borg fyr­ir börn og ekki síðri fyr­ir for­eldra sem elska góðan mat. Við vor­um á miklu flakki þetta sum­arið í alls kyns styttri ferðum út á land og fór­um til dæm­is á Hót­el Gríms­borg­ir og Hót­el Búðir. Þeir ör­fáu dag­ar sem voru óskipu­lagðir náðum við að nýta vel með úti­veru í Foss­vogs­daln­um.“
Anna Fríða skemmti sér vel í vinkonuferð til Kaupmannahafnar.
Anna Fríða skemmti sér vel í vin­konu­ferð til Kaup­manna­hafn­ar. Ljós­mynd/​In­sta­gram

Létu veðrið ekki hafa áhrif

„Svo þetta með veðrið, við reynd­um ekki að láta það hafa mik­il áhrif á okk­ur og bara klædd­um okk­ur upp og reynd­um að fara eins mikið út og við gát­um. Þó að skjá­tími hafi hundrað pró­sent auk­ist þetta sum­ar­fríið,“ seg­ir hún og hlær. 
„Ann­ar hápunkt­ur var að strák­ur­inn okk­ar varð fimm ára. Til að segja frá því hvað við erum veður­sjúk þá var búið að dekka allt og allt var til­búið fyr­ir af­mælið. Svo kom allt í einu blúss­andi sól og við færðum allt af­mælið út til að sitja úti í hálf­tíma. Svo fóru all­ir aft­ur inn því það byrjaði að hellirigna á okk­ur. Það var svo­lítið sum­arið 2024,“ seg­ir hún hlæj­andi að lok­um. 
Anna Fríða elskar að ferðast.
Anna Fríða elsk­ar að ferðast. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert