„Ekki fara hvert sem er í smørrebrauð“

Vesterbro er uppáhalds hverfi Sólar í Kaupmannahöfn og mikið um …
Vesterbro er uppáhalds hverfi Sólar í Kaupmannahöfn og mikið um góða veitingastaði og stóra almenningsgarða. Samsett mynd

Júlí­ana Sól Sig­ur­björns­dótt­ir, oft­ast kölluð Sól, er eig­andi versl­un­ar­inn­ar Offic­ina sem er staðsett í miðbæ Reykja­vík­ur. Sól bjó í Kaup­manna­höfn frá ár­inu 2018 til árs­ins 2023 og starfaði sem vörumerkja­stjóri hjá hús­gagna­fyr­ir­tæk­inu NORR11.

Hvað heillaði þig við Kaup­manna­höfn þegar þú flutt­ir þangað?

„Það var svo margt en kannski fyrst og fremst hvað það fel­ast mik­il lífs­gæði í því að búa þar með börn. Borg­in er mjög barn­væn og það er mik­ill kost­ur að þurfa ekki að vera í bíl að skutla og sækja alla daga. Það kom mér líka á óvart hvað Dan­ir reynd­ust vera skemmti­leg­ir og opn­ir. Við höfðum búið í Berlín þar sem fólk er al­mennt frek­ar lokað en okk­ur var tekið svo vel frá fyrsta degi í Kaup­manna­höfn.

All­ir svo hjálp­leg­ir og við eignuðumst strax marga góða vini sem við eig­um ennþá í dag. Svo má al­veg bæta því við hvað borg­in er ótrú­lega fal­leg. Dan­ir eiga sterka arf­leið í arki­tekt­úr og hönn­un og bera því mikla virðingu fyr­ir hönn­un. Þess vegna verður maður fyr­ir inn­blæstri nán­ast hvert sem litið er á leið til vinnu eða bara úti á róló með börn­in.“

Kaupmannahöfn er barnvæn borg að mati Sólar og verður maður …
Kaup­manna­höfn er barn­væn borg að mati Sól­ar og verður maður fyr­ir inn­blæstri hvert sem litið er. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni

Hvaða hverfi eru í upp­á­haldi hjá þér?

„Vester­bro er í upp­á­haldi. Þar mæt­ast gamla Vester­bro og nýja Vester­bro og bland­ast vel sam­an. Hverfið hef­ur eig­in­lega allt. Fal­lega og stóra al­menn­ings­garða sem við notuðum mikið eins og Sønd­er­mar­ken, versl­an­ir og veit­ingastaði í kring­um Vester­broga­de og fleira. Flest­ir af okk­ar upp­á­halds veit­inga­stöðum og kaffi­hús­um eru í Vester­bro og þar sem við bjugg­um þar þá enduðum við á að verja mikl­um tíma í hverf­inu. En svo eru eig­in­lega öll hverf­in bara frá­bær útaf fyr­ir sig, það er til dæm­is ótrú­lega gam­an að taka dag í Nør­re­bro, frá­bær­ir leik­vell­ir fyr­ir börn­in, ein­stak­ar búðir og gott kaffi.“

Áttu þér upp­á­halds veit­ingastað eða bar? 

„Ég get ómögu­lega valið einn en ætla nefna nokkra staði sem eru í upp­á­haldi. Italo Café í kaffi og pan­ini í há­deg­inu. Við hliðina er svo Italo Thai sem er pasta-veit­ingastaður frá sama fólki og Italo Café í rými sem hýsti mjög lengi Tæl­ensk­an stað og fékk því að halda Thai nafn­inu. Oster­ia 16 er frá­bær fyr­ir „date nig­ht“ en þar fær maður alltaf eitt­hvað gott, Mangia er svo ann­ar í upp­á­haldi og ég verð líka að nefna Surt í Carls­berg Byen. Surt gera bestu pítsur í heimi.“

Hvernig er skemmtana­lífið í Kaup­manna­höfn? 

„Það er svo­lítið allt í boði. Sum af skemmti­leg­ustu kvöld­un­um geta verið á reyk­fylltri bo­degu, önn­ur á klúbbi að dansa eða bara syngja í kareókí með túrist­un­um á Strik­inu. Ég var kannski ekki tíður gest­ur skemmtana­lífs­ins með öll mín fjög­ur­hundruð börn heima en ætli bestu stund­irn­ar hafi ekki verið með góðum vin­um í góðu veðri úti með mjög kalda drykki.“

Hvað er ómiss­andi að sjá?

„Taka dags­ferð á Louisi­ana safnið. Glyptoteket er líka magnað og krefst þess ekki að þú tak­ir lest út úr borg­inni. Ég mæli líka hik­laust með því að leigja hjól og upp­lifa borg­ina þannig. Á meðan þú skoðar bæ­inn þá er mjög næs að fara á Beau Marché sem er frá­bær versl­un og veit­inga­hús. Áður en þú ger­ir þetta allt skaltu samt byrja eins og local og fá þér það sem Dan­inn kall­ar BMO, eða bolle med ost, á Brød eða Hart baka­rí­inu. Ef þú vilt bland­ast 100% inn þá rök­ræðir þú við næsta mann um hvort vester­hav­sost­ur­inn eða gammel kna­as sé betri. Svo er geggjað að taka lít­inn bát á leigu og sigla í kring­um Christians­havn.“

Kaffi og bolla með osti sem er mjög danskt að …
Kaffi og bolla með osti sem er mjög danskt að sögn Sól­ar. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni

Hvernig er drauma­dag­ur­inn þinn í Kaup­manna­höfn?

„Ég myndi byrja á hlaupa­t­úr í kring­um Søer­ne með Sigrúnu Eddu og Lauf­ey vin­kon­um mín­um og enda hlaupa­t­úr­inn á ískaffi á Italo Café á Værnedamsvej og kaupa kannski fal­leg blóm í leiðinni. Síðan myndi ég hjóla með Magga mann­in­um mín­um og strák­un­um mín­um á Ama­ger Strand og fara í sólbað og leika í sjón­um. Svo kvöld­mat með góðum vin­um á Oster­ia 16 Pesce og drykk­ur úti á Eng­have Plads 9 áður en við rölt­um heim.“

Eru ein­hverj­ar túrista­gildr­ur sem ber að var­ast?

„Kannski ekki eyða of mikl­um tíma á Strik­inu, það er svo miklu skemmti­legra að fara inní önn­ur hverfi að versla. Og ekki fara hvert sem er í smør­rebrauð.“

Sól bjó og vann í Kaupmannahöfn.
Sól bjó og vann í Kaup­manna­höfn. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert