Fögnuðu ástinni í bandarísku sveitabrúðkaupi

Ólafur Jóhann Steinsson og Sigurlaug Birna Garðarsdóttir voru glæsileg í …
Ólafur Jóhann Steinsson og Sigurlaug Birna Garðarsdóttir voru glæsileg í bandarísku sveitabrúðkaupi. Samsett mynd

Útvarps­maður­inn og TikT­ok-stjarn­an Ólaf­ur Jó­hann Steins­son, bet­ur þekkt­ur sem Óli á hjóli, og kær­asta hans, Sig­ur­laug Birna Garðars­dótt­ir, voru glæsi­leg í sveita­brúðkaupi í Nashville í Tenn­essee í Banda­ríkj­un­um um helg­ina. 

Parið fagnaði ást­inni bæði klædd í hvít­um dress­um en þau hafa verið sam­an í um fjög­ur ár. 

Ólaf­ur og Sig­ur­laug eru mikið æv­in­týra­fólk en sam­an hafa þau meðal ann­ars ferðast til Dubaí, Banda­ríkj­anna, Eng­lands, Spán­ar og Svíþjóðar. 

Ólaf­ur hef­ur und­an­farið slegið í gegn á sam­fé­lags­miðlin­um TikT­ok þar sem hann spyr ferðamenn hér á landi og út í heimi um Ísland. Einnig hef­ur hann kom­ist í er­lenda fréttamiðla, þá aðallega í Gvatemala og Kan­ada. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert