„Ég myndi fljúga til Íslands bara fyrir bakkelsið“

Íslensku bakaríin heilluðu fjölmiðlakonuna Regan Stephens upp úr skónum.
Íslensku bakaríin heilluðu fjölmiðlakonuna Regan Stephens upp úr skónum. Samsett mynd

Fjöl­miðlakon­an Reg­an Stephens varð heilluð af ís­lensk­um bakarí­um í fyrstu heim­sókn sinni til lands­ins árið 2018. Hún hafði farið á kaf í mat­ar­menn­ingu lands­ins á ferðalagi sínu en seg­ir rús­ín­una í pylsu­end­an­um hafa verið þegar hún kynnt­ist ís­lensk­um bakarí­um und­ir lok ferðar­inn­ar.

„Ég gerði doktors­rann­sókn á hvar og hvað ég ætti að borða í fjög­urra daga heim­sókn minni til þessa af­skekkta lands. Ég komst að því að ís­lenska lambið á sér enga hliðstæðu, þökk sé friðsælu sumr­un­um sem dýr­in verja í sveit­inni að borða kryd­d­jurtir og ber; sjáv­ar­fangið er und­ir­staða í land­inu; og ég ætti ekki að missa af skyri, lakk­rísi og pyls­um,“ skrifaði Stephens í pistli sem hún birti á Tra­vel + Leisure

„Nokkr­um dög­um fyr­ir brott­för sagði vin­kona mín Mel­issa mér þó frá einni ís­lenskri nauðsyn sem ég þyrfti að bæta við á list­ann minn – kanil­snúð sem hún seg­ir vera besta sæta­brauð sem hún hafi borðað,“ bæt­ir hún við, en Stephens viður­kenn­ir að í fyrstu hafi hún verið ef­ins, en all­ar efa­semd­ir hurfu um leið og hún tók fyrsta bit­ann af kanil­snúð frá Brauð & Co.

„Þó að kanil­snúður­inn (bæði klass­íska út­gáf­an og út­gáfa með blá­berjalakk­rís og kara­mellu pek­an­hnet­um) sé aðal stjarn­an er allt bakk­elsið í Brauð & Co. eitt og sér verðugt ferðalags til Íslands,“ seg­ir hún. 

Því næst út­skýr­ir Stephens að frá fyrstu heim­sókn sinni hafi hún kynnst því bet­ur og bet­ur hve öfl­ugri baka­rís­menn­ingu Ísland býr yfir. „Land­inu var stjórnað af krúnu Dan­merk­ur um ald­ir, allt til 1918, svo það er nóg af skandi­nav­ísk­um áhrif­um í mat­reiðslu­lands­lag­inu. En auðvitað hef­ur það lands­lag einnig þró­ast og mót­ast af aðgengi­leg­um auðlind­um Íslands og staðbundnu hrá­efni þess,“ seg­ir hún.

Tók sam­an upp­á­halds­baka­rí­in á Íslandi

Stephens setti sam­an leiðar­vísi fyr­ir þá sem vilja sökkva sér ofan í baka­rís­menn­ingu lands­ins og upp­lifa allt það besta sem staðirn­ir hafa upp á að bjóða. 

„Að sjálf­sögðu byrj­ar þú í Brauð & Co. og ferð svo á Baka­Baka, iðandi kaffi­hús sem er opið all­an dag­inn þar sem þú get­ur fengið þér kaffi með ljúf­fengri kar­dimommu­bollu og sneið af vín­ar­brauði og öðru sæta­brauði und­ir dönsk­um áhrif­um,“ skrif­ar Stephens.

„Í Sand­holti, á aðal­versl­un­ar­göt­unni Lauga­vegi, er fjórða kyn­slóð bak­ara á fullu að baka brauð úr spelti, rúgi og reykt­um graskers­fræj­um ásamt alls kyns boll­um og árstíðabundn­um sérrétt­um,“ bæt­ir hún við. 

„Elsta bakarí Íslands, Bern­höfts­bakarí, er frá ár­inu 1834 og er al­veg þess virði að staldra við þar og fá sér mjúka kringlu og kíkja á vandaðar kök­ur. Svo er það kaffi­húsið og baka­ríið Hyg­ge sem er þekkt fyr­ir skemmti­lega og sí­breyti­lega sérrétti eins og croiss­ant með pip­ar­kök­um og kara­mell­um eða kó­kosrjóma með lakk­rís og hind­berjamar­engs,“ skrif­ar Stephens. 

„Nýopnaða baka­ríið Sweet Aur­ora er fyrsta franska baka­ríið á Íslandi,“ út­skýr­ir Stephens og bæt­ir við að eig­and­inn töfri fram franskt bakk­elsi og sæta­brauð sem gleður bragðlauk­ana.

Að lok­um mæl­ir Stephens með því að fólk leggi leið sína í Bláa Lónið og smakki klein­ur á The Retreat-hót­el­inu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert