Einstök arkitektúrperla frá árinu 1959

Einstök eign sem fangar augað!
Einstök eign sem fangar augað! Samsett mynd

Franska lista­kon­an Be­atrice Faverjon festi kaup á glæsi­legri arki­tekt­úrperlu í Topanga í Kali­forn­íu fyr­ir nokkr­um árum sem hún hef­ur nú gefið alls­herj­ar yf­ir­haln­ingu. Húsið er ein­stakt á marga vegu, en það var byggt árið 1959 af arki­tekt­in­um Earl We­arl. 

Þegar Faverjon keypti húsið var stíll­inn al­gjör­lega í anda sjö­unda ára­tug­ar­ins og húsið málað í ljós­fjólu­blá­um lit að utan. Hún varð þó strax heilluð af formi húss­ins og sá mik­il tæki­færi þar. 

Hún byrjaði á því að klæða húsið að utan með fal­leg­um við sem ber heitið Kayu og gef­ur eign­inni mik­inn karakt­er. Faverjon hélt svo áfram að vinna með sama við að inn­an, en hann má sjá víða – til dæm­is í eld­hús­inu í sér­smíðaðri inn­rétt­ingu, á veggj­um og í lofti. 

Tíma­laus og ein­stök hönn­un

End­ur­bæt­urn­ar heppnuðust afar vel hjá lista­kon­unni og í dag er eign­in tíma­laus og ein­stök. Að utan setja sterkt form og áber­andi viður svip sinn á eign­ina, en að inn­an er eign­in hlý­leg og mini­malísk þar sem hver hlut­ur hef­ur verið val­inn inn af mik­illi kost­gæfni. 

Eign­in er til út­leigu á Airbnb, en þar rúm­ast allt að sex næt­ur­gest­ir hverju sinni. Eign­in stát­ar af þrem­ur svefn­her­bergj­um og þrem­ur baðher­bergj­um og kost­ar nótt­in þar 785 banda­ríkja­dali, eða sem nem­ur rúm­lega 109 þúsund kón­um á gengi dags­ins í dag. 

Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
Ljós­mynd/​Airbnb.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert