Fimm stórkostleg hótel í Marrakesh

Sannkallað augnayndi!
Sannkallað augnayndi! Samsett mynd

Marga dreym­ir um að heim­sækja Marra­kesh í Mar­okkó og upp­lifa ein­staka menn­ingu, fag­ur­fræði og sögu borg­ar­inn­ar beint í æð. Það vant­ar ekki upp á feg­urð í hót­el­senu borg­ar­inn­ar, en hér má sjá fimm guðdóm­leg hót­el sem Marra­kesh stát­ar af og ættu að hitta beint í mark hjá hönn­unar­unn­end­um.

El Finn

Hót­elið El Finn opnaði fyrst fyr­ir um tveim­ur ára­tug­um, en síðan þá hef­ur hót­elið breyst og stækkað og stát­ar nú af þrett­án sam­tengd­um bygg­ing­um, þrem­ur sund­laug­um og 41 svefn­her­bergj­um sem hafa verið inn­réttuð á glæsi­leg­an máta. Á hót­el­inu mæt­ist gam­alt og nýtt og skap­ar ein­staka stemn­ingu í anda Mar­okkó. 

Hótelið opnaði fyrst fyrir rúmlega 20 árum síðan.
Hót­elið opnaði fyrst fyr­ir rúm­lega 20 árum síðan. Ljós­mynd/​El.Fenn.com
Hótelið býr yfir miklum sjarma.
Hót­elið býr yfir mikl­um sjarma. Ljós­mynd/​El.Fenn.com

Farasha Farm­hou­se

Í um 45 mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá Med­ina stend­ur fal­leg­ur sveita­bær inn­an um ólífu­tré og glæsi­lega fjallag­arða. Ein­stök fag­ur­fræði ein­kenn­ir staðinn sem fell­ur sér­lega vel inn í ósnortið lands­lagið, en þar finn­ur þú lúx­us-sveita­stemn­ingu eins og hún ger­ist best. 

Hótelið er umvafið guðdómlegu landslagi.
Hót­elið er um­vafið guðdóm­legu lands­lagi. Ljós­mynd/​Farashafarm­hou­se.com
Hvert smáatriði á hótelinu er útpælt.
Hvert smá­atriði á hót­el­inu er út­pælt. Ljós­mynd/​Farashafarm­hou­se.com

Cara­v­an by Habits Agafay

Í Agafay-eyðimörk­inni í Mar­okkó finn­ur þú Cara­v­an-hót­elið sem býður upp á upp­lif­un sem heill­ar augað sam­stund­is. Áhersla hef­ur verið lögð á að gera staðinn mini­malísk­an, sjálf­bær­an og vist­væn­an, en þar er and­rúms­loftið afar ró­legt og friðsælt.

Ró og friðsæld eru í forgrunni á hótelinu.
Ró og friðsæld eru í for­grunni á hót­el­inu. Ljós­mynd/​Expedia.co.uk
Hótelið hefur verið innréttað á afar fallegan máta.
Hót­elið hef­ur verið inn­réttað á afar fal­leg­an máta. Ljós­mynd/​Expedia.co.uk

Mai­son Brum­mell Maj­or­elle

Hið glæsi­lega Mai­son Brum­mell Maj­or­elle hef­ur vakið mikla at­hygli, enda end­ur­spegl­ar þessi fag­ur­bleika mód­ern­íska teikn­ing um­hverfið á skemmti­leg­an máta. Fal­leg­ir skúlp­túr­ar, form­fög­ur hús­gögn og ljúf litap­all­etta er í for­grunni að inn­an sem skapa ein­staka stemn­ingu.

Hótelbyggingin hefur vakið þó nokkra athygli.
Hót­el­bygg­ing­in hef­ur vakið þó nokkra at­hygli. Ljós­mynd/​Book­ing.com
Að innan tekur einstök fagurfræði á móti gestum og skapar …
Að inn­an tek­ur ein­stök fag­ur­fræði á móti gest­um og skap­ar nota­legt and­rúms­loft. Ljós­mynd/​Book­ing.com

Rosemary

Þetta fal­lega hót­el er staðsett í ein­um af elstu hverf­um Med­ina og stát­ar af ein­stöku mar­okkósku hand­verki hvert sem litið er. Það var belg­íski leik­list­armaður­inn og hönnuður­inn Laurence Leena­ert sem á heiður­inn af fag­ur­fræði hót­els­ins, en þar fær litagleðin að njóta sín ásamt óhefðbundn­um form­um.

Hótelið líkist helst listaverki.
Hót­elið lík­ist helst lista­verki. Ljós­mynd/​rosemarymarra­kech.com
Skemmtilegir litir og form gefa rýmum hótelsins mikinn karakter.
Skemmti­leg­ir lit­ir og form gefa rým­um hót­els­ins mik­inn karakt­er. Ljós­mynd/​rosemarymarra­kech.com

Condé Nast Tra­vell­er

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert