Jökulsárlón á lista yfir fegurstu vötn heims

Þvílík fegurð!
Þvílík fegurð! Samsett mynd

Víðs vegar um heiminn finnast undurfögur vötn, allt frá spegilsléttum vötnum sem endurspegla fegurstu fjallagarða heims yfir í fagurbleik vötn með merkilega jarðfræðisögu.

Á dögunum birtist listi yfir fegurstu vötn heims á vef virta ferðatímaritsins Condé Nast Traveller, en listann prýða fjölmörg falleg vötn, þar á meðal Jökulsárlón á Íslandi.

„Í Vatnajökulsþjóðgarði á Suðausturlandi er Jökulsárlón, en jökullónið og frosna ströndin eru talin vera eitt af náttúruundrum landsins og ekki að ástæðulausu: Svartir eldfjallasandar skapa magnað sjónarspil til móts við ísbúta sem skolast í land. Svo fær áfangastaðurinn enn fleiri bónusstig þegar norðurljósin endurspeglast í vatninu,“ er skrifað um lónið í greininni.

Hér má svo sjá fimmtán vötn af listanum sem standa upp úr að mati blaðamanns ferðavefs mbl.is.

Laguna Colorada

Laguna Colorada er hátt uppi í bólivísku fjöllunum, en vatnið …
Laguna Colorada er hátt uppi í bólivísku fjöllunum, en vatnið er með einstakan bleikan blæ vegna rauðþörunga sem finnast í vatninu. Ljósmynd/Unsplash/Hugo Kruip

Dauðahafið

Þrátt fyrir nafngiftina er Dauðahafið í raun saltvatn umvafið hvítum …
Þrátt fyrir nafngiftina er Dauðahafið í raun saltvatn umvafið hvítum serpentínsaltmyndunum og fallegum fjöllum sem skapa einstakt sjónarspil. Ljósmynd/Pexels/Aviv Perets

Kawaguchiko-vatn

Horft í gegnum blómstrandi kirsuberjatré yfir Kawaguchiko-vatn og Fuji-fjall í …
Horft í gegnum blómstrandi kirsuberjatré yfir Kawaguchiko-vatn og Fuji-fjall í Japan. Ljósmynd/Unsplash/Spenser Sembrat

Como-vatn

Það þarf varla að kynna Como-vatn á Ítalíu fyrir lesendum, …
Það þarf varla að kynna Como-vatn á Ítalíu fyrir lesendum, enda eitt frægasta og fegursta vatn heims. Ljósmynd/Unsplash/Peter Thomas

Tahoe-vatn

Lake Tahoe er stærst alpavatna í Norður-Ameríku og er talið …
Lake Tahoe er stærst alpavatna í Norður-Ameríku og er talið hafa myndast milljónum ára fyrir ísöld. Ljósmynd/Unsplash/Ethan Dow

Sørvágsvatn

Sørvágsvatn er stærsta stöðuvatn Færeyja.
Sørvágsvatn er stærsta stöðuvatn Færeyja. Ljósmynd/Unsplash/Maria Teneva

Thale Noi

Hið undurfagra Thale Noi í Tælandi.
Hið undurfagra Thale Noi í Tælandi. Ljósmynd/Unsplash/Billow926

Hutt Lagoon

Það er erfitt að toppa sjónarspilið þegar horft er yfir …
Það er erfitt að toppa sjónarspilið þegar horft er yfir Moraine-vatn í fögrum fjallasal í Kanada. Ljósmynd/Unsplash/Davey Gravy

Tekapo-vatn

Litagleðin ræður ríkjum í hinu stórbrotna Hutt Lagoon í Ástralíu.
Litagleðin ræður ríkjum í hinu stórbrotna Hutt Lagoon í Ástralíu. Ljósmynd/Unsplash/Dylan Shaw

Lago di Braies

Það sem gerir Lake Tekapo í Nýja Sjálandi einstakt eru …
Það sem gerir Lake Tekapo í Nýja Sjálandi einstakt eru litríku lúpínurnar sem vaxa meðfram bakka vatnsins. Ljósmynd/Unsplash/Munir Rani

Mondsee

Dólómítarnir bjóða upp á eina fegurstu fjallasýn í Evrópu, ekki …
Dólómítarnir bjóða upp á eina fegurstu fjallasýn í Evrópu, ekki síst þegar fjöllin endurspeglast í Lago di Braies á Ítalíu. Ljósmynd/Unsplash/Giordano Rossoni

Lac de Sainte-Croix

Aðdáendur kvikmyndarinnar Söngvaseiðs (e. Sound of Music) ættu að kannast …
Aðdáendur kvikmyndarinnar Söngvaseiðs (e. Sound of Music) ættu að kannast við Mondsee í Austurríki, en þar er sérlega fallegt stöðuvatn. Ljósmynd/Unsplash/Joseph Jones

Bachalpsee-vatn

Þegar siglt er niður ána Verdon í Frakklandi blasir við …
Þegar siglt er niður ána Verdon í Frakklandi blasir við hið töfrandi Lac de Sainte-Croix. Ljósmynd/Unsplash/Jens Peter Olesen

Pichola-vatn

Töfrandi útsýni yfir Bachalpsee-vatn í Sviss.
Töfrandi útsýni yfir Bachalpsee-vatn í Sviss. Ljósmynd/Unsplash/Ansgar Scheffold
Í sögufrægu borginni Udaipur í Indlandi finnur þú Pichola-vatn.
Í sögufrægu borginni Udaipur í Indlandi finnur þú Pichola-vatn. Ljósmynd/Unsplash/Yashowardan Singh
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert