Þetta eru flottustu Airbnb-villurnar á Balí

Einstök fagurfræði einkennir villurnar!
Einstök fagurfræði einkennir villurnar! Samsett mynd

Það eru fáir sem myndu slá hend­inni á móti töfr­andi fríi á Balí í Indó­nes­íu, enda staður sem prýðir laupal­ista (e. bucket list) margra. Balí er þekkt fyr­ir ein­stakt úr­val af fyrsta flokks hót­el­um, en á und­an­förn­um árum hafa sí­fellt fleiri glæsi­vill­ur verið skráðar til út­leigu á bók­un­ar­vef Airbnb.

Ferðavef­ur mbl.is tók sam­an fimm vill­ur á Balí sem eru til út­leigu á Airbnb, en þess­ar vill­ur standa all­ar upp úr þegar kem­ur að hönn­un, fag­ur­fræði og stemn­ingu. 

Stíl­hrein og björt hönn­un­ar­p­ara­dís

Í suður Kuta á Balí stend­ur guðdóm­leg hönn­un­ar­villa sem hef­ur verið inn­réttuð á sér­lega sjarmer­andi máta. Húsið er bjart og opið með mik­illi loft­hæð og stór­um glugg­um, en þar hef­ur nátt­úr­an verið dreg­in inn með lita­vali og vali á efnivið. Í garðinum má svo sjá fal­lega sund­laug og nota­lega aðstöðu þar sem gest­ir geta sólað sig.

Boðið er upp á að leigja her­bergi í hús­inu á Airbnb á 80 banda­ríkja­dali, eða sem nem­ur rúm­um 11 þúsund krón­um á gengi dags­ins í dag. 

Húsið hefur verið innréttað á afar hlýlegan máta.
Húsið hef­ur verið inn­réttað á afar hlý­leg­an máta. Ljós­mynd/​Airbnb.com
Hvert smáatriði er útpælt.
Hvert smá­atriði er út­pælt. Ljós­mynd/​Airbnb.com
Í garðinum er notaleg aðstaða við sundlaugina.
Í garðinum er nota­leg aðstaða við sund­laug­ina. Ljós­mynd/​Airbnb.com

Sjarmer­andi sum­ar­hús með ótrú­legu út­sýni

Í Kinta­mani á Balí er að finna fal­legt sum­ar­hús með stór­kost­legu út­sýni yfir nátt­úru­feg­urðina í kring, þar á meðal eld­fjöll, hraun og gíg­vötn. Sum­ar­húsið hef­ur verið inn­réttað með það að mark­miði að skapa af­slappað og ró­andi rými þar sem gest­ir geta safnað orku. Lita- og efn­is­val húss­ins er inn­blásið af nátt­úr­unni í kring og skap­ar ein­staka stemn­ingu.

Sum­ar­húsið er til út­leigu á Airbnb, en það rúm­ar tvo næt­ur­gesti hverju sinni. Nótt­in í hús­inu kost­ar 155 banda­ríkja­dali, eða sem nem­ur rúm­lega 21 þúsund krón­um.

Sumarhúsið er ekki stórt en þar er þó allt til …
Sum­ar­húsið er ekki stórt en þar er þó allt til alls til að slaka á og hafa það nota­legt. Ljós­mynd/​Airbnb.com
Útsýnið frá sumarhúsinu er stórkostlegt.
Útsýnið frá sum­ar­hús­inu er stór­kost­legt. Ljós­mynd/​Airbnb.com
Aðstaðan við húsið er sérlega sjarmerandi.
Aðstaðan við húsið er sér­lega sjarmer­andi. Ljós­mynd/​Airbnb.com

Hrátt og heill­andi heim­ili með an­tík-yf­ir­bragði

Í Ubud á Bali stend­ur afar heill­andi ein­býl­is­hús sem hef­ur verið inn­réttað á skemmti­leg­an máta. Hrátt yf­ir­bragð er yfir hús­inu þar sem nýtt og gam­alt mæt­ist og skap­ar ljúfa stemn­ingu. Nátt­úru­leg­ur efniviður og jarðlit­ir eru áber­andi í hönn­un húss­ins, en frá al­rými húss­ins er opið út í garð með fal­legri sund­laug og nota­legri aðstöðu til af­slöpp­un­ar. 

Húsið er til út­leigu á Airbnb og rúm­ar allt að tvo næt­ur­gesti hverju sinni. Nótt­in þar kost­ar 155 banda­ríkja­dali, eða sem nem­ur rúm­lega 21 þúsund krón­um.

Falleg áferð og efnviður úr náttúrunni skapa karakter í húsinu.
Fal­leg áferð og efnviður úr nátt­úr­unni skapa karakt­er í hús­inu. Ljós­mynd/​Airbnb.com
Garðurinn er ekki síður heillandi.
Garður­inn er ekki síður heill­andi. Ljós­mynd/​Airbnb.com
Sjarmerandi antíkmunir prýða húsið og skapa notalega stemningu.
Sjarmer­andi an­t­ík­mun­ir prýða húsið og skapa nota­lega stemn­ingu. Ljós­mynd/​Airbnb.com

Lúxusvilla með drauma útield­húsi

Í Canggu á Balí stend­ur tign­ar­leg lúxusvilla sem stát­ar af ein­stakri hönn­un. Hrátt yf­ir­bragð og lúx­us mæt­ast inni í hús­inu þar sem hátt er til lofts. Stór­ir sjarmer­andi glugg­ar prýða eign­ina og hleypa mik­illi birtu inn, en veita einnig út­sýni yfir fal­leg­an garð húss­ins. Það er svo ein­stakt útield­hús í garðinum sem set­ur punkt­inn yfir i-ið.

Átta næt­ur­gest­ir rúm­ast í hús­inu hverju sinni, en það er til út­leigu á Airbnb og kost­ar nótt­in 700 banda­ríkja­dali, eða sem nem­ur um 97 þúsund krón­um. 

Hrátt yfirbragð og mikill lúxus einkenna hönnun hússins.
Hrátt yf­ir­bragð og mik­ill lúx­us ein­kenna hönn­un húss­ins. Ljós­mynd/​Airbnb.com
Fallegir húsmunir fá að njóta sín í húsinu.
Fal­leg­ir hús­mun­ir fá að njóta sín í hús­inu. Ljós­mynd/​Airbnb.com
Hver væri ekki til í að eiga guðdómlegt útieldhús eins …
Hver væri ekki til í að eiga guðdóm­legt útield­hús eins og þetta? Ljós­mynd/​Airbnb.com

Strand­ar­stemn­ing og átta metra sund­laug

Í Canggu á Balí er einnig að finna fal­lega og bjarta villu þar sem míni­malísk strand­ar­stemn­ing ræður ríkj­um. Það er mikið um ljós­an við og bast, en þar að auki eru hvít­ir og blá­ir tón­ar áber­andi í hús­gögn­um. Í garðinum er stór sund­laug, en við enda henn­ar er glæsi­leg­ur bar sem gleður sann­ar­lega augað.

Húsið er til út­leigu á Airbnb og rúm­ar allt að sex næt­ur­gesti hverju sinni. Nótt­in kost­ar 376 banda­ríkja­dali, eða sem nem­ur rúm­um 52 þúsund krón­um.

Það er notaleg strandarstemning í húsinu öllu.
Það er nota­leg strand­ar­stemn­ing í hús­inu öllu. Ljós­mynd/​Airbnb.com
Glæsilegur bar er við annan enda sundlaugarinnar.
Glæsi­leg­ur bar er við ann­an enda sund­laug­ar­inn­ar. Ljós­mynd/​Airbnb.com
Barinn setur án efa punktinn yfir i-ið.
Bar­inn set­ur án efa punkt­inn yfir i-ið. Ljós­mynd/​Airbnb.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert