Gerður í Blush mátaði brúðarkjóla í Mílanó

Jakob Fannar og Gerður eru hrifin af Ítalíu.
Jakob Fannar og Gerður eru hrifin af Ítalíu. Skjáskot/Instagram

Gerður Ar­in­bjarn­ar­dótt­ir, eig­andi kyn­líf­stækja­versl­un­ar­inn­ar Blush, er stödd í menn­ing­ar­borg­inni Mílanó á Ítal­íu ásamt unn­usta sín­um, Jakob Fann­ari Han­sen.

Ekki er langt síðan að parið trú­lofaði sig á Ítal­íu en Jakob Fann­ar fór á skelj­arn­ar í byrj­un júlí­mánaðar og bað sinn­ar heitt­elskuðu um borð í báti er sigldi um Garda-vatn, stærsta stöðuvatn Ítal­íu.

Gerður hef­ur gefið fylgj­end­um sín­um skemmti­lega inn­sýn í ferðalag þeirra á In­sta­gram-síðu sinni síðustu daga. Hún sýndi meðal ann­ars frá leik AC Mil­an og Li­verpool, en parið ákvað með stutt­um fyr­ir­vara að skella sér á völl­inn þrátt fyr­ir þekkja lítið til íþrótt­ar­inn­ar.

Gerður heim­sótti einnig brúðar­kjóla­versl­un í borg­inni, án unn­usta síns, og fékk að máta fal­lega brúðar­kjóla. 

Gerður var umvafin glæsilegum brúðarkjólum.
Gerður var um­vaf­in glæsi­leg­um brúðar­kjól­um. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert