Fjölmiðlastjarnan Guðrún Dís Emilsdóttir nýtur lífsins á Alicante á Spáni þessa dagana og virðist endurnærð eftir gott en stutt frí. Hún deildi myndaseríu á Instagram þar sem hún slakaði á í sólbaði, fór í golf og fékk sér bjór á ströndinni.
„Dásamlegur örtúr til Spánar bjargaði geðheilsunni eftir rigningasumarið mikla,“ skrifaði hún við myndirnar.