Sigga Dögg og Sævar ástfangin á Ítalíu

Sigga Dögg og Sævar á Ítalíu.
Sigga Dögg og Sævar á Ítalíu. Skjáskot/Instagram

Það væs­ir ekki um Sig­ríði Dögg Arn­ar­dótt­ur, rit­höf­und og kyn­fræðing, en hún er um þess­ar mund­ir stödd á Ítal­íu ásamt eig­in­manni sín­um, Sæv­ari Eg­ils­syni fyrr­ver­andi knatt­spyrnu­manni, og góðvin­konu þeirra hjóna. 

Sig­ríður Dögg, eða Sigga Dögg eins og hún er kölluð, deildi sól­ríkri myndaseríu með fylgj­end­um sín­um á In­sta­gram í morg­uns­árið og af mynd­um að dæma fer afar vel um þríeykið í þessu gíf­ur­lega sögu­ríka menn­ing­ar­landi. 

„Napólí & Pom­pei & Am­al­fi strönd­in. Neðanj­arðar­hell­ar og graff og forn­minj­ar. Sól, báta­ferðir og lest­ar og strætó og labb. Mat­ur og drykk­ur og kaffi. Þrumu­veður. Kirkj­ur og Mara­dona. Alltaf rauður varalit­ur og frá­bær fé­lags­skap­ur,“ skrifaði hún við færsl­una. 

Sigga Dögg er mik­il ferðakona og dug­leg að heim­sækja fram­andi slóðir. Fyrr á ár­inu ferðaðist hún til Arg­entínu og birti meðal ann­ars mynd­skeið af sér að ganga nak­in um stærsta nekt­ar­svæði í heimi, Yat­an Rumi í Cor­dóba-ríki í Arg­entínu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert