Bestu AirBnb-íbúðirnar í Porto

Það er mikið um heillandi íbúðir til að leigja.
Það er mikið um heillandi íbúðir til að leigja. Ljósmynd/Samsett mynd

Porto er borg í Portúgal sem þykir ótrú­lega fög­ur og sjarmer­andi. Borg­in er við ána Douro og er þekkt fyr­ir fal­leg­an arki­tekt­úr, lit­skrúðug hús, stein­lagðar göt­ur, heill­andi brýr og að sjálf­sögðu púrt­vínið. Vín­ekr­urn­ar í Douro-daln­um eru fjölda­marg­ar og er það á óskalista marga að sigla niður ána og stoppa á mis­mun­andi vín­ekr­um.

Miðbær Porto er á heims­minja­skrá Unesco og ættu all­ir að reyna að heim­sækja borg­ina við tæki­færi. Hér fyr­ir neðan er listi af flottri Air­b'n'b-gist­ingu í Porto fyr­ir þau sem vilja aðeins meira en hót­el­her­bergi get­ur boðið upp á og oft á betra verði.

Casa Almares er ynd­is­leg og stíl­hrein íbúð sem er vel staðsett og rúm­ar fjóra gesti. Eig­end­ur henn­ar voru und­ir skandína­vísk­um áhrif­um við hönn­un henn­ar og í bland við portú­galska stemn­ingu. Íbúðin er steinsnar frá Trinda­de-lest­ar­stöðinni og svo er mikið um góða veit­ingastaði og mat­ar­versl­an­ir í aðeins nokk­urra mín­útna göngu­fjar­lægð. 

Íbúðin var gerð upp í skandinavískum stíl.
Íbúðin var gerð upp í skandi­nav­ísk­um stíl. Ljós­mynd/​Airbnb

Alquim­ia er sann­kölluð lúxus­í­búð og rúm­ar sex gesti. Íbúðin var inn­réttuð á nú­tíma­leg­an hátt, þar sem portú­galska list má finna á veggj­um í bjartri setu­stof­unni. Sæng­ur­föt­in eru í takt við þau sem notuð eru á bestu hót­el­um heims.

Gulur velúrsófi setur skemmtilegan svip á rýmið í Alquimia-íbúðinni.
Gul­ur velúr­sófi set­ur skemmti­leg­an svip á rýmið í Alquim­ia-íbúðinni. Ljós­mynd/​AirBnb

Barn­væn og lit­rík íbúð sem er full­kom­in fyr­ir fjög­urra manna fjöl­skyldu og er frá­bær­lega vel staðsett í Bol­hão-hverf­inu. Íbúðinni fylg­ir þvotta­vél og þurrk­ari sem mik­il­vægt er að hafa þegar ferðast er með börn og for­eldr­arn­ir geta notið sín með púrt­víns­glas á svöl­un­um þegar litlu mann­eskj­urn­ar sofna loks­ins.

Barnvæn íbúð á besta stað.
Barn­væn íbúð á besta stað. Ljós­mynd/​AirBnb

Hvað er betra en að sofa á gam­alli vín­ekru? Húsið hef­ur verið í eigu sömu fjöl­skyld­unn­ar í yfir 150 ár en því hef­ur nú verið breytt í heill­andi leigu­íbúð. Útsýnið yfir fjöll­in og ána ger­ir gist­ing­una enn meira sjarmer­andi og fáir kvarta yfir ná­lægðinni við þekkt­ar vín­ekr­ur í Douro-daln­um.

Sveitastemning á vínekru.
Sveita­stemn­ing á vín­ekru. Ljós­mynd/​AirBnb

Hús rit­höf­unds­ins er lit­ríkt og staðsett við strönd­ina. Vegg­irn­ir eru bleik­ir, áferðirn­ar mjúk­ar og vegg­flís­arn­ar mynstraðar. Það er full­komið að njóta morg­un­boll­ans á svöl­un­um og ganga svo niður á strönd sem tek­ur aðeins fimm mín­út­ur. Íbúðin tek­ur við fjór­um gest­um.

Litrík íbúð nálægt ströndinni.
Lit­rík íbúð ná­lægt strönd­inni. Ljós­mynd/​AirBnb

Heill­andi íbúð í miðborg­inni í tvöhundruð ára gömlu húsi þar sem þú færð sög­una beint í æð. Í íbúðinni finn­urðu stóra glugga, viðargólf og íburðar­mik­il rúm. Íbúðin er vel staðsett fyr­ir þá sem ætla að heim­sækja alla vin­sæl­ustu túrist­astaðina. Þeir sem eru viðkvæm­ir fyr­ir hávaða ættu þó að velja sér aðra gist­ingu þar sem næt­ur­lífið er mikið og há­vært í grennd­inni.

Frábær staðsetning í gömlu húsi.
Frá­bær staðsetn­ing í gömlu húsi. Ljós­mynd/​Airbnb
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert