Draumalífsstíll „stafrænna flakkara“

Margir eru ekki á eitt sáttir um stafrænt vinnuafl og …
Margir eru ekki á eitt sáttir um stafrænt vinnuafl og ofurferðamennsku. Jonas Leupe/Unsplash

Fyr­ir­tæki eru í stór­aukn­um mæli að greiða leiðina fyr­ir starfs­fólk til að vinna í fjar­vinnu, en aukið aðgengi að wi-fi og net­lausn­um hef­ur gert það að verk­um að auðveld­ara er að ger­ast svo­kallaður „sta­f­rænn hirðingi“, þ.e. að ferðast og vinna á sama tíma. 

Þetta kem­ur fram á frétta­vef BBC.

Árið 1997 var því spáð að vinnu­afl framtíðar­inn­ar yrði hreyf­an­legra og sí­fellt fleiri myndu sinna störf­um í fjar­vinnu. Hreyf­an­legt vinnu­afl hef­ur verið í örum vexti síðan 2010 og sprakk út í kór­ónu­veirufar­aldr­in­um þegar enn fleir­um var gert kleift að vinna í í fjar­vinnu. Eft­ir að fólk hafði prófað þenn­an starfs­máta áttu marg­ir erfitt með að hverfa aft­ur til þess hefðbundna, inn á skrif­stof­una.

Sta­f­ræn­ir hirðingj­ar bíða þess ekki að fara á eft­ir­laun til að geta skoðað heim­inn held­ur gera það á sama tíma og þeir sinna vinn­unni. Þá hafa ýmis lönd tekið upp á að auðvelda aðkomu­fólki veru í land­inu með því að gefa út nýja teg­und af visa fyr­ir starfs­fólk og fyr­ir­tæki.

Sífellt fleiri kjósa að vinna í fjarvinnu og ferðast á …
Sí­fellt fleiri kjósa að vinna í fjar­vinnu og ferðast á sama tíma. Agnieszka Boe­ske/​Unsplash

Full­kom­inn lífs­stíll sem sting­ur marga

Í aug­um margra er þetta hinn full­komni lífs­stíll að vera frjáls ferða sinna og kanna heim­inn á sama tíma og launaðri vinnu er sinnt. Hins veg­ar eru aðrir sem eru á móti þessu og segja að slíkt leiði til geng­is­hækk­ana og of­ur­ferðamennsku, sem sé ein­ung­is til þess fallið að keyra upp verð og gera ákveðin svæði óbú­an­leg fyr­ir inn­fædda.

Hreyf­an­legt vinnu­afl hef­ur auk­ist um 131% sem ger­ir það að verk­um að lönd eins og Spánn og Grikk­land hafa mót­mælt gríðarlegri aukn­ingu ferðamanna.

Inn­fædd­ir í Dóm­ink­anska lýðveld­inu, á Balí og í Suður-Afr­íku eru ósátt­ir yfir hækk­andi verðlagi og hús­næðis­verði sem ger­ir þeim nán­ast ókleift að lifa í sínu eig­in landi.

Er þá ein­hver leið til að vera sta­f­rænn hirðingi án þess að ýta und­ir ójöfnuð og of­ur­ferðamennsku? Juan Barbed einn stofn­enda ROORAL seg­ir mik­il­vægt fyr­ir fólk í fjar­vinnu sem kýs að setj­ast að í öðru landi að vera í góðum tengsl­um við þorp og bæi um hvort vera þeirra á staðnum sé af hinu góða. Ef svarið er nei, þá er bara að fara eitt­hvert annað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert