Reykjavík Edition-hótelið þykir þriðja besta að mati lesenda

Reykjavík Edition-hótelið er fimm stjörnu hótel sem er staðsett við …
Reykjavík Edition-hótelið er fimm stjörnu hótel sem er staðsett við hliðina á Hörpu og við höfnina í Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Reykja­vík Ed­iti­on-hót­elið hef­ur verið valið þriðja besta hót­elið í Evr­ópu af les­end­um Condé Nast Tra­veler. 

Í ár eru les­end­ur Condé Nast í 27. skipti að kjósa upp­á­halds­áfangastaði, flug­velli, skemmti­ferðaskip, hót­el o.s.frv. Verðlaun­in eru ár­leg­ur viðburður Condé Nast og eru at­kvæðin feng­in frá bresk­um ferðalöng­um.

Reykja­vík Ed­iti­on-hót­elið hef­ur áður fengið viður­kenn­ing­ar en bar­inn The ROOF á Reykja­vík Ed­iti­on-hót­el­inu var val­inn besti þak­b­ar heims á bresku vefsíðunni EnjoyTra­vel í fyrra. 

Með þriðja sæt­inu skýt­ur úti­bú hót­els­ins í Reykja­vík m.a. því í Genf, Berlín, Brus­sel og Vín, ref fyr­ir rass.

„Ed­iti­on er lúx­us hót­elkeðja og er hug­mynd­in að hót­el­in séu staðsett í flott­ustu borg­un­um þar sem þau bjóða upp á það besta í þjón­ustu, mat, drykk og skemmt­un. Hót­elið í Reykja­vík var reist við hlið Hörpu og opnaði síðla í októ­ber árið 2021,“ seg­ir í frétta­til­kynn­ingu frá hót­el­inu. 

Reykjavík Edition-hótelið var opnaði 2021.
Reykja­vík Ed­iti­on-hót­elið var opnaði 2021. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

List­inn í heild sinni:

Skjá­skot/ Condé Nast Tra­veler

Condé Nast Tra­veler

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert