Þjóðþekktir Íslendingar flykktust til Ítalíu

Ítalía hefur mikið aðdráttarafl.
Ítalía hefur mikið aðdráttarafl. Samsett mynd

Ítal­ía hef­ur lengi laðað til sín fólk hvaðanæva að úr heim­in­um. Fjöl­marg­ir Íslend­ing­ar heim­sækja landið á hverju ári og njóta alls þess besta sem þetta sögu­ríka menn­ing­ar­land hef­ur upp á að bjóða.

Marg­ir þjóðþekkt­ir ein­stak­ling­ar hafa á síðustu mánuðum ferðast til Ítal­íu og deilt fal­leg­um mynd­um frá ferðalög­um sín­um á sam­fé­lags­miðlasíðunni In­sta­gram.

Gerður Huld og Jakob Fann­ar!

Gerður Huld Ar­in­bjarn­ar­dótt­ir, at­hafna­kona og eig­andi kyn­líf­stækja­versl­un­ar­inn­ar Blush, trú­lofaðist sín­um heitt­elskaða, Jakobi Fann­ari Han­sen, á Ítal­íu í sum­ar. Jakob Fann­ar fór á skelj­arn­ar og bað Gerðar Huld­ar um borð í báti er parið sigldi um Garda-vatn, stærsta stöðuvatn Ítal­íu.

Parið er greini­lega hrifið af land­inu en það hélt aft­ur út til Ítal­íu um miðjan sept­em­ber og eyddi ynd­is­leg­um dög­um í Mílanó.

Fann­ey og Teit­ur!

Fann­ey Ingvars­dótt­ir, markaðsfull­trúi Bi­oef­fect og fyrr­ver­andi feg­urðardrottn­ing, og Teit­ur Reyn­is­son, viðskipta­fræðing­ur í Lands­bank­an­um, gengu í hjóna­band við fal­lega at­höfn í Dóm­kirkj­unni í Reykja­vík í ág­úst.

Örfá­um dög­um eft­ir her­leg­heit­in skelltu hjón­in sér í brúðkaups­ferð til Ítal­íu og eyddu sól­rík­um dög­um við Como-vatn.

Gummi kíró!

Guðmund­ur Birk­ir Pálma­son, jafn­an kallaður Gummi kíró, naut lífs­ins til hins ýtr­asta á Ítal­íu í sum­ar. Hann heim­sótti ít­ölsku borg­irn­ar Or­vieto og Flórens og var án efa best klæddi maður­inn á göt­um borg­anna. 

Rúrik Gísla­son!

Rúrik Gísla­son, tón­list­armaður, leik­ari og fyrr­ver­andi knatt­spyrnumaður, ferðaðist til eyj­unn­ar Vulcano á Ítal­íu í júní og fagnaði ást­inni í brúðkaupi vina sinna. 

Eg­ill og Thelma!

Útvarps­maður­inn Eg­ill Ploder Ottós­son fór í for­eldra­frí með sam­býl­is­konu sinni, Thelmu Gunn­ars­dótt­ur, til Róm­ar í sum­ar. Parið heim­sótti sögu­leg kenni­leiti borg­ar­inn­ar og bragðaði að sjálf­sögðu á ljúf­fengu rauðvíni. 

Júlí Heiðar og Þór­dís Björk!

Leik­arap­arið Júlí Heiðar Hall­dórs­son og Þór­dís Björk Þorfinns­dótt­ir fór ásamt börn­um sín­um í sann­kallaða drauma­ferð til Ítal­íu í júlí og áttu þar góðar stund­ir.

Svali og fjöl­skylda!

At­hafna- og út­varps­maður­inn Sig­valdi Kaldalóns, jafn­an kallaður Svali, ferðaðist ásamt fjöl­skyldu sinni til Ítal­íu í sum­ar og kynnti sér borg­ir og bæi. Hann er hrif­inn af heitu lönd­un­um en hann býr að hluta til á spænsku eyj­unni Teneri­fe og hef­ur gert í nokk­ur ár. 

Björn og Ann!

Bæklun­ar­sk­urðlækn­ir­inn Björn Zoëga gekk að eiga unn­ustu sína, Ann Zoëga, í sól og blíðu á eyj­unni Monte Isola, sem er staðsett í vatn­inu Isola á Norður-Ítal­íu, í byrj­un sept­em­ber. Ítal­ía skartaði sínu feg­ursta þegar parið var pússað sam­an að viðstödd­um nán­ustu ætt­ingj­um og vin­um. 

Ann og Björn Zoëga gengu í hjónaband á eyjunni Monte …
Ann og Björn Zoëga gengu í hjóna­band á eyj­unni Monte Isola á Ítal­íu. Ljós­mynd/​MM

Berg­lind Guðmunds­dótt­ir!

Berg­lind Guðmunds­dótt­ir, mat­gæðing­ur, markþjálfi og leiðsögumaður, heim­sótti Ur­bino á Ítal­íu í sept­em­ber og end­ur­nærði bæði lík­ama og sál um­vaf­in fal­legri nátt­úru lands­ins. Hún elsk­ar Ítal­íu og hef­ur farið í ótal heim­sókn­ir þangað. Ein af­drifa­rík­asta ferðin var þegar hún gift­ist sjálfri sér í einni slíkri ferð. 

Vil­hjálm­ur H. Vil­hjálms­son!

Stjörnu­lögmaður­inn Vil­hjálm­ur H. Vil­hjálms­son eyddi dá­semd­ar­dög­um á Ítal­íu fyrr á ár­inu. Hann ferðaðist meðal ann­ars á mótor­hjóli frá bæn­um DaPolignano a Mare til Santa Maria de Leuca og heim­sótti einnig knatt­spyrnu­mann­inn Al­bert Guðmunds­son sem spil­ar með Genoa á Ítal­íu. Vil­hjálm­ur á íbúð í Napólí og reyn­ir að verja eins mikl­um tíma í borg­inni og hann get­ur og er því á stöðugu flakki á milli Ítal­íu og Íslands. 


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert