„Eins og hasarinn í borginni rói mig niður“

Melkorka gekk í stóran grunnskóla í borginni.
Melkorka gekk í stóran grunnskóla í borginni. Ljósmynd/Úr einkasafni

Lista­kon­an Mel­korka Katrín Tóm­as­dótt­ir, oft kölluð Korka eða Korkimon, er á fyrsta ári í masters­námi við mynd­list í skól­an­um School of Visual Arts í New York. Það má segja að New York sé borg­in henn­ar en hún bjó þar í tíu ár frá tólf ára aldri. Hún lét sig dreyma um að vera ein af þess­um nem­end­um í lista­há­skóla í borg­inni og nú nokkr­um árum síðar hef­ur það ræst.

„Ég út­skrifaðist úr Sarah Lawrence árið 2017 og planið var að fara svo út í masters­nám til Am­er­íku. En ég ætlaði ekki aft­ur til New York. Ég bjó þar í tíu ár frá því ég var tólf til tutt­ugu- og tveggja ára. Ég hélt ég væri búin með þann kafla. Svo þegar ég var að sækja um nám síðasta vet­ur þá ákvað ég frek­ar í flýti að sækja líka um í School of Visual Arts, eða SVA. Það vildi þannig til að um­sókn­ar­frest­ur­inn þeirra var nokkr­um dög­um lengri en ann­ars staðar og mér fannst það vera ein­hvers­kon­ar merki. 

Fyrstu tvö árin mín í New York þá var ég í ein­um af þess­um risa­stóru al­menn­ings­skól­um, með 1200 nem­end­ur í 6.-8. bekk. Á hverj­um degi á leiðinni í skól­ann labbaði ég fram­hjá þess­um há­skóla og sá nem­end­urna labba þar inn og út. Ég man alltaf hvað mér fannst þetta kúl og lét mig dagd­reyma um það að vera full­orðin í lista­há­skóla. Reynd­ar var SVA einn af skól­un­um sem ég var að velja úr þegar ég var að fara í bachel­or-námið mitt en ég endaði á að velja Sarah Lawrence því þar gat ég verið á ekta skóla­vist fyr­ir utan borg­ina,“ seg­ir Mel­korka. 

Hún seg­ir að þegar hún flaug aft­ur til borg­ar­inn­ar í ág­úst leið henni eins og hún væri kom­in heim. „Hitt heim. Það var mjög góð til­finn­ing.“

Melkorka Katrín bjó í New York sem unglingur og er …
Mel­korka Katrín bjó í New York sem ung­ling­ur og er aft­ur flutt til borg­ar­inn­ar í masters­nám í mynd­list. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni

Ver mest­um tíma í Bus­hwick í Brook­lyn

Hvaða hverfi eru í upp­á­haldi hjá þér?

„Gamla hverfið mitt, Gra­mercy Park, þar sem ég ólst upp í á alltaf hjart­astað hjá mér en það er líka erfitt að koma þangað. Önnur hverfi sem eru mér kunn­ug frá því í „gamla daga“ og mér þykir vænt um eru til dæm­is Upp­er West Side þar sem ég var í grunn­skóla (e. high school), Williams­burg þar sem bróðir minn og kon­an hans bjuggu og East Villa­ge þar sem ég og vin­ir mín­ir átt­um til að slæp­ast og stel­ast til að drekka þegar við vor­um ung­ling­ar. Ég var einu sinni tek­in af lögg­unni þar sex­tán ára með áfengi, það var ekki gam­an og ég þurfti að játa á mig sekt­ina.“

Í dag seg­ist hún eyða mest­um tíma í Bus­hwick í Brook­lyn þar sem hún á heima. „Ég elska það hverfi. Og svo eyði ég mikl­um tíma í Chel­sea þar sem stúd­íó­in í skól­an­um eru og East og West Villa­ge.“

Það er erfitt að velja sér upp­á­halds veit­ingastaði eða bari í borg­inni því það er ein­fald­lega of mikið að velja úr. 

„Corner Bar sem er á Nine Orch­ard-hót­el­inu er rosa smart. Um dag­inn fór ég á stað sem heit­ir Mister Para­dise í East Villa­ge sem er kokteila, smá­rétta og ham­borg­arastaður með mjög flottu „in­ter­i­ori“ og lýs­ingu. Starfs­fólkið er smart í verka­manna­skyrt­um með embróderuðum nafna­merkj­um sem ég er al­gjör sökk­er fyr­ir. Ann­ar smart staður rétt hjá skól­an­um sem ég dýrka heit­ir Ca­feter­ia.“

Það er gríðarlegt framboð af góðum mat og drykk í …
Það er gríðarlegt fram­boð af góðum mat og drykk í borg­inni. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni
Melkorka eyðir mestum tíma í Bushwick í Brooklyn þar sem …
Mel­korka eyðir mest­um tíma í Bus­hwick í Brook­lyn þar sem hún býr, í Chel­sea í skól­an­um eða East og West Villa­ge. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni
Cafeteria er í miklu uppáhaldi.
Ca­feter­ia er í miklu upp­á­haldi. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni

24 tíma klúbb­ar

Hvernig er skemmtana­lífið í New York?

Svaka­lega fjöl­breytt og spenn­andi. Tveir klúbb­ar sem ég fýla eru Nowadays í Bus­hwick sem er bæði inni- og úti­klúbb­ur og er með opið 24 tíma um helg­ar. Síðan er það Basement sem er í Knockdown Center og er al­veg klikkaður. Ann­ars er ég mest að vinna upp í stúd­íói um helg­ar fer frek­ar út að borða með vin­um á kvöld­in. Það er eins og has­ar­inn í borg­inni rói mig í raun­inni niður og stund­um er nóg að fá að fylgj­ast með úr fjar­lægð. Mér finnst gott að sofa vel og vakna snemma um helg­ar og það er eins og ég græði ein­hvern­veg­inn auka tíma þannig.“

Basement-klúbburinn í New York.
Basement-klúbbur­inn í New York. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni
Nowadays-klúbburinn sem er opinn í 24 tíma um helgar.
Nowadays-klúbbur­inn sem er op­inn í 24 tíma um helg­ar. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni

Hvað er ómiss­andi að sjá?

„Þetta er kannski skrítið svar en mér dett­ur fyrst í hug bara am­er­ísk­ar mat­vöru­búðir, þær eru eitt­hvað annað. Ég elska þær, það er allt til. All­ar hill­ur eru full­ar og flott­ar. Það er al­veg verið að massa-feisa-selja hérna. Ég get ekki út­skýrt.“

„Mín per­sónu­lega mar­tröð“

Hvernig er drauma­dag­ur­inn þinn í New York?

„Þetta er skrít­in spurn­ing fyr­ir mér því það er eins og að spyrja hvernig drauma­dag­ur hjá mér í Reykj­vík væri. Það er svo venju­legt fyr­ir mér að vera hérna. En ætli það sé ekki að vakna snemma, búa mér til kaffi og drekka það á meðan ég dingla mér heima. Brjóta sam­an þvott, ganga frá eld­húsi, klæða mig og skipu­leggja dag­inn. Mæta í rækt­ina! Heim í sturtu og koma mér út. Svo myndi ég kaupa mér ristaða „everything-beyglu“ með rjóma­osti og tómöt­um og borða hana í lest­inni á leiðinni upp í stúd­íó. Vinna þar í nokkra klukku­tíma og fá hug­mynd, það er alltaf draum­ur­inn, að fá hug­mynd í dag.

Þá er klukk­an kannski orðinn fjög­ur að síðdegi og þá er ég lík­lega orðin smá svöng og vill viðra mig. Rölti þá yfir í deli-inn á sjö­unda stræti hjá skól­an­um og fæ mér kalk­úna­vefju og Coke Zero. Þar sest ég niður á ein­hvern bekk og borða. Hey, þarna er „mani-pedi-snyrti­stofa“ og ég tríta mig og læt naglalakka mig. Ég fer að vinna meira í stúd­íó en vil síðan fara annaðhvort að sjá bíó niðri í IFC Center í West Villa­ge, helst ein því mér finnst skemmti­leg­ast að fara ein í bíó og svo eft­ir það vil ég fara með ein­hverj­um að sjá uppistand í ein­um af klúbb­un­um þar í kring. Síðan tek ég lest­ina heim, fæ þar góðar þrjá­tíu mín­út­ur ein að hlusta á eitt­hvað, hugsa og lesa eft­ir drauma­dag­inn minn. Góða nótt.“

Eru ein­hverj­ar túrista­gildr­ur sem ber að var­ast?

„Mér dett­ur helst í hug að segja fólki bara að sleppa Times Square-bull­inu. Eða þú veist, ég skil al­veg að vilja fara þangað til að hafa farið. En þetta er mín per­sónu­lega mar­tröð.“

Um helgar er hún oft að vinna í skólanum og …
Um helg­ar er hún oft að vinna í skól­an­um og seg­ir hún has­ar­inn í borg­inni róa sig niður. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni
Amerískar matvörubúðir er eitthvað sem enginn ætti að láta framhjá …
Am­er­ísk­ar mat­vöru­búðir er eitt­hvað sem eng­inn ætti að láta fram­hjá sér fara að mati Mel­korku. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert