Breskur rappari heillaðist af Íslandi

Ajikawo er heilluð af Íslandi.
Ajikawo er heilluð af Íslandi. Skjáskot/Instagram

Rapp­ar­inn Simb­iatu Abisola Abi­ola Ajikawo, best þekkt­ur und­ir lista­manns­nafn­inu Little Simz, heim­sótti Ísland ný­verið og virðist heillaður af landi og þjóð.

Ajikawo, sem hef­ur gert það gott í bresku rapp­sen­unni síðustu ár, deildi mynd­um frá ferðalagi sínu á In­sta­gram í gær­dag og hafa hátt í 56.000 manns líkað við færsl­una. 

Rapp­ar­inn birti meðal ann­ars mynd af norður­ljós­un­um, en það er langþráður draum­ur margra ferðamanna að fá að fylgj­ast með dansi norður­ljós­anna þegar myrkrið er sem mest.

„Ísland, ég mæli ein­dregið með,” skrifaði Ajikawo við myndaserí­una.

View this post on In­sta­gram

A post shared by simz (@litt­lesimz)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert