Hvort viltu það kalt eða heitt um jólin?

Bæjarland í Þýskalandi og Bahamas eru einnig á hátíðarlista Travel …
Bæjarland í Þýskalandi og Bahamas eru einnig á hátíðarlista Travel and Leisure fyrir vinsæla áfangastaði. Samsett mynd

Hvort sem er í faðmi fjöl­skyldu og vina eða í ein­ver­unni vilja ef­laust flest­ir hafa það ágætt um jól­in. Fyr­ir suma eru snjór­inn og kuld­inn aðal­atriðið, sem er svo jóla­legt, á meðan aðrir sækj­ast í að sleikja sól­ina á huggu­legri baðströnd.

Hvar sem áhuga­sviðið ligg­ur og svo langt sem greiðslu­get­an nær, þá ættu all­ir að finna eitt­hvað við sitt hæfi á lista Tra­vel and Leisure yfir bestu staði til að heim­sækja yfir hátíðirn­ar.

Ljósadýrðin í New York.
Ljósa­dýrðin í New York. Pin­t­erest

New York

Fátt jafn­ast á við jól­in í New York. Borg­ar­ljós­in skína skært árið um kring en yfir hátíðarn­ar fær­ast töfr­arn­ir á næsta stig. Fal­lega skreytt trén í Rocke­fell­er Center og í Washingt­on Square Park, upp­lýst fram­hlið Saks Fifth Avenue og líf­leg­ar glugga­skreyt­ing­ar á Macy's Her­ald Square.

Hægt er að valsa um með heitt kakó í hendi og versla jóla­gjaf­ir á mörkuðum í þýsk­um stíl og taka þátt í aldagam­alli hefð með því að kaupa miða á sýn­ingu Radio City Rockettes á Broadway.

Sagt er að New York sé einnig ákjós­an­leg fyr­ir ein­hleypa yfir hátíðarn­ar, enda flest­ir staðir opn­ir; kvik­mynda­hús, veit­ingastaðir og bar­ir. Þá eru nokkr­ar Broadway-sýn­ing­ar og nú­tíma­dans­sýn­ing­ar, t.d. Al­vin Ailey og Hnotu­brjót­ur­inn.

Það er huggulegt um að lítast í Brugge í Belgíu.
Það er huggu­legt um að lít­ast í Brug­ge í Belg­íu. Pin­t­erest

Brug­ge 

Jóla­markaðirn­ir tveir sem eru í Brug­ge í Belg­íu eru þeir vin­sæl­ustu í Vest­ur-Evr­ópu. Markaðirn­ir fylla nán­ast Markt-torgið í hjarta bæj­ar­ins, með allt frá hand­gerðu skarti og skrauti yfir í rjúk­andi heitt kakó og ull­ar­sokka.

Upp­lif­un­in teyg­ir sig hvert sem litið er og búðar­glugg­arn­ir á bygg­ing­un­um, sem um­lykja torgið, eru fal­lega skreytt­ir. 

Mælt er með her­berg­is­svít­unni á Van Cleef hót­el­inu, með út­sýni yfir fal­legt síkið sem renn­ur í gegn­um bæ­inn.

Beaver Creek í Colorado.
Bea­ver Creek í Col­orado. Pin­t­erest

Bea­ver Creek

Önnur leið til að verja jóla­frí­inu er í brekk­um Bea­ver Creek í Col­orado. Þetta fal­lega skíðaþorp býður upp á skemmti­leg­ar jóla­at­hafn­ir fyr­ir alla fjöl­skyld­una, t.a.m hátíðarkvik­mynda­kvöld og jóla­bakst­ur­skeppn­ir.

Hægt er að velja um gisti­staði, þar sem er nán­ast hægt að renna sér inn og út á skíðunum.

Edinborg í Skotlandi.
Ed­in­borg í Skotlandi. Pin­t­erest

Ed­in­borg

Ed­in­borg­ar-kast­al­inn er án efa eitt þekkt­asta kenni­leiti borg­ar­inn­ar og ljóm­ar yfir hátíðarn­ar. Hinn ár­legi viðburður Kast­ali ljóss­ins (Castle of Lig­ht) laðar að fjölda fólks með stór­brot­inni ljósa­sýn­ingu sem varpað er á veggi þess­ar­ar 12. ald­ar bygg­ing­ar. 

Síðdeg­iste á The Dome er annað sem vert væri að prófa yfir hátíðarn­ar þar sem greg­oríska te-her­bergið fær hátíðarbrag með fal­leg­um skreyt­ing­um.

Þá er um að gera að rölta um jóla­markaðinn á Geor­ge Street og draga að sér sann­kallað hátíðarand­rúms­loft. 

Flórída Keys er vinsæll eyjaklasi við strendur Flórída.
Flórída Keys er vin­sæll eyja­klasi við strend­ur Flórída.

Flórída Keys

Flórída er eng­in ný­lunda fyr­ir Íslend­inga og til­val­in fyr­ir þá sem vilja eyða jóla­frí­inu á banda­rísk­um strandáfangastað. 

Til­valið er að byrja fríið á fal­legu ferðalagi um Keys-eyj­arn­ar og hafa viðkomu á nokkr­um þeirra á leið til Key West. Tím­inn yfir hátíðarn­ar er afar vin­sæll hjá ferðamönn­um en hægt er að halda sig frá mesta straumn­um með því t.d. að dvelja í Sun­set Key Cotta­ges. Þessi 27 hekt­ara eyja er aðgengi­leg með ferju og þar er eitt besta hót­elið í Key West.

Kyrr­lát­ur felu­staður í stuttri fjar­lægð frá aðdrátt­ar­afli borg­ar­inn­ar. 

Í Rovaniemi í Finnlandi. Hver myndi ekki vilja gista í …
Í Rovaniemi í Finn­landi. Hver myndi ekki vilja gista í svona snjó­húsi með glugg­um. Pin­t­erest

Rovaniemi

Hver ætli sé jóla­leg­asti staður í heimi? Jú, ætli það sé ekki heima­bær sjálfs jóla­sveins­ins í Rovaniemi í Finn­landi, höfuðborg Lapp­lands. En þó ekki heima­bær ís­lensku jóla­svein­anna því þeir búa vita­skuld hér­lend­is, uppi um fjöll og firn­indi. 

Heim­ili jóla­sveinaþorps­ins og jóla­sveinag­arðsins þar sem hægt er að hitta á aðal­mann­inn og hrein­dýr­in hans.

Mik­il fönn er á jörðu yfir há­vet­ur­inn og þá er einnig tími norður­ljósa. Ekki þarf að haf­ast við úti til að bera þau aug­um held­ur er hægt að bóka gist­ingu í svo­kölluðum snjó­hús­um með glerþaki svo hægt sé að liggja í hlýju rúm­inu og njóta þeirra á meðan þau dansa á næt­ur­himn­in­um. 

Ævintýralegar Maldíveyjar.
Ævin­týra­leg­ar Maldív­eyj­ar. Pin­t­erest

Maldív­eyj­ar

Sé jóla­ósk­in að klæðast frem­ur san­döl­um en snjóþrúg­um gætu Maldív­eyj­ar ef­laust verið spenn­andi áfangastaður. Þessi suðræna para­dís, eyja­klasi í Suður-Asíu í Ind­lands­hafi, verður ef­laust eitt besta jóla­fríið, með öllu inni­földu.

Mælt er með dval­ar­stöðum á borð við Meeru Maldív­eyj­ar, Const­ance Moofus­hi og Lily Beach. 

Tra­vel and Leisure

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert