Uppáhaldsveitingastaðir Taylor Swift í New York

Taylor Swift er ein frægasta söngkona heims í dag.
Taylor Swift er ein frægasta söngkona heims í dag. AFP/David Eulitt

Tayl­or Swift býr við þann veru­leika að vera hundelt af ljós­mynd­ur­um hvert sem hún fer. Und­an­farna mánuði hef­ur hún verið mynduð fyr­ir utan nokkra vin­sæla veit­ingastaði í New York en svo virðist sem hún sæki á sömu staðina aft­ur og aft­ur. Hún er þá mann­leg eft­ir allt sam­an.

Chez Margaux er nýr staður aðeins fyr­ir meðlimi sem er bæði veit­ingastaður og næt­ur­klúbb­ur. Staður­inn opnaði snemma í nóv­em­ber og hafa stjörn­ur eins og Swift, Zoë Kra­vitz og Leon­ar­do DiCaprio heim­sótt staðinn.

Chez Margaux.
Chez Margaux. Ljós­mynd/​In­sta­gram

Swift borðaði kvöld­verð á The Corner Store í Soho ásamt of­ur­fyr­ir­sæt­unni Gigi Hadid á dög­un­um. Þar er hægt að fá rétti eins og Wagyu-nauta­kjöt, píts­ar­úll­ur, hum­ar og fransk­ar. Martíni-vagn­inn þykir þó einna skemmti­leg­ast­ur sem býður upp á áhuga­verða kokteila.

Á The Corner Shop er góður matur og enn betri …
Á The Corner Shop er góður mat­ur og enn betri kokteil­ar. Ljós­mynd/​In­sta­gram

Lucali er fræg­ur píts­astaður sem Swift og kær­asti henn­ar Tra­vis Kelce hafa sést nokkr­um sinn­um á. Síðan staður­inn opnaði árið 2006 hafa stjörn­ur eins og Jay-Z, Beyoncé og Selena Gomez heim­sótt staðinn ótt og títt. Píts­astaður­inn er lít­ill og býður aðeins upp á þrjá­tíu sæti.

Stjörnurnar elska pítsurnar á Lucali.
Stjörn­urn­ar elska pítsurn­ar á Lucali. Ljós­mynd/​In­sta­gram

Via Carota er ann­ar veit­ingastaður sem Swift heim­sæk­ir og síðast ásamt vin­konu sinni Sophie Turner. Staður­inn er í West Villa­ge-hverf­inu og sæk­ir inn­blást­ur til ít­alskr­ar mat­ar­gerðar. Fyr­ir utan söng­kon­una eru stjörn­ur er­ins og Maggie Gyl­len­haal, Jenni­fer Lawrence og Andy Cohen mikl­ir aðdá­end­ur staðar­ins.

Via Carota er undir ítölskum áhrifum.
Via Carota er und­ir ít­ölsk­um áhrif­um. Ljós­mynd/​In­sta­gram

Gríski veit­ingastaður­inn Paros býður upp á ferska sjávar­étti, humarp­asta, sverðfiskskebab og sjáv­ar­rétta-risotto. Swift hef­ur sést með vini sín­um Jack Ant­onoff á þess­um stað.

Gríski staðurinn Pyros.
Gríski staður­inn Pyros. Ljós­mynd/​In­sta­gram

Vín­bar­inn Parcelle er hlý­leg­ur og heill­andi en þangað fóru vin­kon­urn­ar Swift og Selena Gomez á dög­un­um. Staður­inn er þekkt­ur fyr­ir nátt­úru­leg og sjald­gæf vín. Þegar þú hef­ur pantað flösku þá sting­ur þjónn­inn upp á matn­um sem pass­ar sem best við vínið. 

Á Parcelle færðu sjaldgæf náttúruvín.
Á Parcelle færðu sjald­gæf nátt­úru­vín. Ljós­mynd/​In­sta­gram



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert