Chrissy Teigen deilir bestu ferðaráðunum

Chrissy Teigen deilir ýmsum ferðaráðum í nýlegu viðtali.
Chrissy Teigen deilir ýmsum ferðaráðum í nýlegu viðtali. Skjáskot/Instagram

Am­er­íska fyr­ir­sæt­an, Chris­sy Teig­en, þrífst ansi vel á að skemmta sér heima við með fjöl­skyld­unni,sem er dug­leg að ferðast. Hún á fjög­ur börn með eig­in­manni sín­um, marg­falda Grammy-verðlauna­haf­an­um, John Le­g­end. 

Í ný­legu viðtali við Tra­vel and Leisure seg­ir hún frá mat­ar­venj­um í tengsl­um við ferðalög og deil­ir ferðaráðum. 

Chrissy Teigen og John Legend eiga saman fjögur börn og …
Chris­sy Teig­en og John Le­g­end eiga sam­an fjög­ur börn og hafa gam­an af að ferðast. Um jól­in ætla þau til London. Skjá­skot/​In­sta­gram

Spurð um hvaða áfangastaður hafi komið henni mest á óvart varðandi mat seg­ir Teig­en það vera Balí. Mat­ur­inn þar sé ótrú­lega bragðgóður.

 „Við elsk­um tonn af kryddi og þessa blöndu af beysku, sætu og söltu,“ seg­ir hún í viðtal­inu.

Á Balí fór hún á ótal mat­reiðslu­nám­skeið aðeins vegna þess hve inn­blás­in hún var af staðbundnu hrá­efn­inu.

Á ferðalagi seg­ist Teig­en helst vilja borða þurrkað nauta­kjöt eða „beef jerky“, sem einnig er fá­an­legt í mat­vöru­búðum hér­lend­is. Hún geti þó sjaldn­ast hafnað matn­um sem flug­vél­arn­ar bjóða upp á og pass­ar aug­ljós­lega að vera vel södd á flugi.

Chrissy Teigen veit fátt betra en að vera með börnunum …
Chris­sy Teig­en veit fátt betra en að vera með börn­un­um sín­um. Skjá­skot/​In­sta­gram

Lím­ir lím­band á flug­sæti og glugga

Þegar hún kem­ur heim eft­ir langt ferðalag seg­ist hún helst vilja elda ein­fald­an rétt á borð við spa­gettí í tóm­atsósu, með kryddi, ferskri basilíku og rifn­um par­mes­an osti. 

Eina var­an sem Teig­en get­ur ekki ferðast án og fylg­ir í far­angr­in­um hvert sem hún fer er kremið Aquap­hor. Það not­ar hún á hnú­ana, var­irn­ar og and­litið og seg­ir það vera al­hliða lækn­ingu á öllu því áreiti á húðina sem fylg­ir oft löng­um ferðalög­um.

Spurð um hver sé besta leiðin til að halda börn­un­um upp­tekn­um á flugi, seg­ir Teig­en það vera spjald­tölvu fyr­ir eldri börn­in. Þau fá að spila leiki og horfa á það sem þau lang­ar til og því fylgja eng­in tak­mörk. 

„Ef all­ir þegja þá er ég ánægð.“

Fyr­ir yngri börn­in sá Teig­en snilld­ar­ráð á TikT­ok sem hún nýt­ir óspart á ferðalagi. Það er að líma lím­band á glugg­ana og flug­sætið fyr­ir fram­an og leyfa kríl­un­um að dunda sér við að plokka það af og setja á aft­ur.

Þetta hafi a.m.k haldið henn­ar börn­um upp­tekn­um góða stund.

Upp­á­halds áfangastaður yfir hátíðarn­ar seg­ir Teig­en t.d. vera borg­ar­ferð til New York að sjá The Rockettes. Að þessu sinni ætl­ar fjöl­skyld­an hins veg­ar að fara til London, þar sem hún ætl­ar að ferðast um í tveggja hæða stræt­is­vagni og versla í Harrods.

Í flugi fá eldri börnin að vera eins mikið og …
Í flugi fá eldri börn­in að vera eins mikið og þau vilja í spjald­tölvu. Þá set­ur Teig­en eng­in tak­mörk á skjánotk­un. Skjá­skot/​In­sta­gram

Tra­vel and Leisure

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert