Eva Laufey eyddi langri helgi í Lissabon

Eva Laufey Kjaran blómstrar í fæðingarorlofinu.
Eva Laufey Kjaran blómstrar í fæðingarorlofinu. mbl.is/Eyþór Árnason

Eva Lauf­ey Kjaran Her­manns­dótt­ir, mat­argyðja og upp­lif­un­ar­stjóri Hag­kaups, og eig­inmaður henn­ar, Har­ald­ur Har­alds­son deild­ar­stjóri Icelanda­ir Cargo, eyddu langri helgi í höfuðborg Portú­gals, Lissa­bon. Með í för var yngsta dótt­ir hjón­anna, hin sex mánaða gamla Mar­grét Mar­en.

Eva Lauf­ey gaf fylgj­end­um sín­um inn­sýn í ferðalagið á In­sta­gram-síðu sinni.

„Löng helgi í Lissa­bon,” skrifaði Eva Lauf­ey við færsl­una sem sýn­ir mæðgurn­ar meðal ann­ars njóta sól­ar­inn­ar á Praça do Comér­cio-torg­inu í miðbæ borg­ar­inn­ar.

Lissa­bon hef­ur notið mik­illa vin­sælda á und­an­förn­um árum. Borg­in hef­ur ít­rekað lent á lista yfir bestu staði í heimi til að verja efri ár­un­um og hlaut ný­verið World Cul­in­ary Aw­ards, sem ein besta mat­ar­borg Evr­ópu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert