EasyJet kynnir nýja áfangastaði frá Íslandi

Nú geturðu flogið til Lyon í Frakklandi með EasyJet.
Nú geturðu flogið til Lyon í Frakklandi með EasyJet.

Breska flug­fé­lagið Ea­syJet hef­ur bætt við tveim­ur áfanga­stöðum frá Íslandi; Basel Mul­hou­se í Swiss og Lyon í Frakklandi.

Sala miða er þegar haf­in en þess­ir staðir eru á áætl­un fé­lags­ins fyr­ir sum­arið 2025. Flogið verður tvisvar í viku á báða þessa áfangastaði.

„Þessi ákvörðun ea­syJet er mikið fagnaðarefni,“ seg­ir Grét­ar Már Garðars­son, for­stöðumaður flug­fé­laga og leiðaþró­un­ar á Kefla­vík­ur­flug­velli, í til­kynn­ingu.

„Þetta er til marks um hve mikla trú fé­lagið hef­ur á áfangastaðnum Íslandi. Við tök­um fagn­andi á móti farþegum Ea­syJet frá Basel og Lyon og erum þess full­viss að ís­lenskt ferðafólk nýt­ir tæki­færið og tek­ur flugið á þessa tvo áfangastaði fé­lags­ins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert