Að fljúga nakinn þýðir ekki að fjarlægja fötin sín áður en maður fer um borð í flugvél. Að fljúga nakinn er hugtak sem nær utan um það þegar einstaklingur ferðast létt og tekur aðeins það allra nauðsynlegasta með segir í The Week Magazine.
„Þetta er mínimalískt hugtak og snýst um að skilja allan óþarfa eftir heima og pakka því allra helsta í einn lítinn bakpoka. Þannig þarf maður ekki að bíða í röð eftir að tékka inn töskur og bíða svo eftir þeim þegar komið er á áfangastað. Þetta er spurning um að losa sig við allt sem kann að valda streitu.“
„Þessa mínimalíska nálgun má skipta niður í tvo aðskilda flokka fyrir mismunandi gerðir ferðamanns.“
„Öfgakenndasta gerð þess að fljúga nakinn. Ferðalangar taka aðeins með það helsta eins og til dæmis hleðslutæki, veski og sólgleraugu. Engin auka föt og engar snyrtivörur. Þetta er tilvalið fyrir styttri ferðir.“
„Þessi flokkur er fyrir þá sem geta ekki skilið allt eftir og nýta alla vasa fyrir hluti eins og snarl, litlar snyrtivörur eða minnisbók. Þessi týpa er öllu viðbúin en forðast samt að taka með hefðbundinn farangur.“
Það eru ekki allir sammála kostum þess að ferðast létt.
„Það er skrítin tilfinning að fara um flugvöll með ekkert á sér. Næstum eins og að taka bara strætó,“ segir einn á TikTok.
„Vaknaði og ákvað að fara í flug án þess að taka neitt með mér nema góða skapið,“ sagði annar.
„Mér finnst þetta alveg galið. Hvernig getur fólk sleppt því að taka með sér farangur?“
Þó svo að þetta heilli marga þá hefur þessi ferðastíll marga ókosti í för með sér. Margir enda á að þurfa að kaupa sér mikið af fötum á áfangastað. Það kann að hljóma heillandi en þá þarf maður samt líka að kaupa ferðatösku fyrir bakaleiðina og það getur verið vandamál.