Jón Gnarr gæddi sér á skötu á Spáni

Jón Gnarr, Jóga Gnarr og Guðbjörg Bjarnadóttir.
Jón Gnarr, Jóga Gnarr og Guðbjörg Bjarnadóttir. Skjáskot/Instagram

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar og húmoristi, er staddur á spænsku eyjunni Gran Canaria. Hann kvaddi kuldann og leiðindaveðrið sem hefur herjað á íbúa höfuðborgarsvæðisins undanfarna daga og nýtur nú sólarblíðunnar ásamt eiginkonu sinni, Jógu Gnarr.

Jón birti mynd af sér ásamt eiginkonu sinni og Guðbjörgu Bjarnadóttur, eiganda veitingastaðarins Why Not Lago á Maspalomas, á Instagram-síðu sinni í dag, en þangað kíktu hjónin í íslenska skötuveislu, eins og margir landsmenn gera á Þorláksmessu.

„Með Guðbjörgu Bjarnadóttur vert á Why not Lago í Maspalomas eftir undursamlega skötuveislu,“ skrifaði Jón við myndina, saddur og alsæll á svip.

View this post on Instagram

A post shared by Jón Gnarr (@jongnarr)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert