Draumastaðir fyrir aðdáendur Hringadróttinssögu

Hrjóstrugt landslag Teide-þjóðgarðsins á Tenerife þótti tilvalinn staður fyrir tökur …
Hrjóstrugt landslag Teide-þjóðgarðsins á Tenerife þótti tilvalinn staður fyrir tökur á nýjustu þáttaröð í seríunni The Ring of Power. Michal Mrozek/Unsplash

Fyrsta bók J. R. R. Tolkiens í þríleikn­um Hringa­drótt­ins­saga, The Fellows­hip of the Ring, kom út sum­arið 1954. Sjö­tíu árum seinna kom út önn­ur þáttasería, The Ring of Power, í ág­úst 2024.

Um­gjörð þátt­anna er glæsi­leg og lands­lag hverr­ar senu líkt og af öðrum heimi. Þá mætti halda að Tolkien hefði skapað lands­lagið líkt og hann skáldaði per­són­ur trílógí­unn­ar. Svo er víst ekki því marg­ir staðanna í sög­um Tolkiens eru til og gæti heim­sókn til þeirra glætt heim Tolkiens lífi. 

Tolkien gekk um svæðið í kringum Stonyhurst og fékk innblástur …
Tolkien gekk um svæðið í kring­um Stonyhurst og fékk inn­blást­ur fyr­ir sögu­svið Hringa­drótt­ins­sögu. Marty Finn­ey/​Unsplash

Tolkien-slóðin: Lancashire, Eng­land

Þegar Tolkien skrifaði Hringa­drótt­ins­sögu í kring­um 1940 bjó hann um tíma í hinum virta heima­vist­ar­skóla Stonyhurst í Lancashire á Englandi, en son­ur hans kenndi við skól­ann. Tolkien eldri gekk um skóg­lendið og hæðirn­ar í Ribble-daln­um þar sem hann sótti inn­blást­ur til að skapa Shire, heim­ili Hobbit­anna. 

Í dag geta áhuga­sam­ir farið Tolkien-slóðina sem var opnuð 2002. Leiðin hefst í Hurst Green-þorp­inu, nán­ar til­tekið á 17. ald­ar kránni Shireburn Arms, þar sem Tolkien var fasta­gest­ur. Göngu­leiðin ligg­ur um sjö kíló­metra hæðótt, ræktað land, fram hjá glæsi­bygg­ing­um Stonyhurst-skól­ans og yfir sögu­leg kenni­leiti eins og Cromwell's-brúna. 

Margt á leiðinni minn­ir óneit­an­lega á verk Tolkiens, t.a.m ber Maríu­kirkj­an, í nær­liggj­andi þorpi Newchurch in Pendle, augn­laga út­skurð hálfa leið upp í turn­inn. Útskurður­inn er þekkt­ur sem auga Guðs, líkt og alsjá­andi auga Saurons úr Hringa­drótt­ins­sögu.

Tolkien og kona hans Edith giftu sig árið 1916 í …
Tolkien og kona hans Edith giftu sig árið 1916 í Somer­set á Englandi. Thom­as Tucker/​Unsplash

Chedd­ar Gor­ge: Somer­set, Eng­land

Tolkien og kona hans Edith giftu sig árið 1916 og fóru í brúðkaups­ferð til Somer­set-þorps­ins í Clevedon. Á meðan þau dvöldu þar skoðuðu þau hið stór­brotna lands­lag: Chedd­ar Gor­ge. Kalk­steins­dal­ur þar sem eru ara­grúi hella með veggj­um þökt­um flókn­um berg­mynd­un­um, grjóti sem rís upp úr hell­is­gólf­inu og dropa­stein­um.

Í einka­bréfi Tolkiens frá 1971, gefnu út 1981 sem hluti af The letters of J.R.R. Tolkien, kem­ur fram að hell­arn­ir í Chedd­ar Gor­ge hafi verið inn­blást­ur fyr­ir glitrandi hell­ana í Helm's Deep.

Den­ize Bluffs: Waitomo, Nýja-Sjá­land

Ætla má að aðdá­end­ur Tolkiens yrðu fljót­ir að þekkja Den­ize Bluffs, svæði með bylgjóttu lands­lagi og runn­um á norður­eyju Nýja-Sjá­lands. Lands­lagið kem­ur fyr­ir í mynd­inni Hobbit­an­um, The Hobbit: An Unexpected Jour­ney, þar sem eng­inn ann­ar en Bil­bo Bagg­ins lend­ir í fjand­sam­leg­um tröll­um í Trolls­haw; skógi vöxnu, hæðóttu lands­lagi.

Den­ize Bluffs stend­ur á landi sem hef­ur verið í einka­eigu sömu fjöl­skyldu í þrjár kyn­slóðir. Þar er rekið sauðfjár- og naut­gripa­bú. Eig­end­urn­ir selja skoðun­ar­ferðir um landið, því sem sést í kvik­mynd­un­um og sjón­varpsþátt­un­um, og lífgað er upp á ferðirn­ar með sög­um Tolkiens.

Tolkien þvertók fyrir að Hringadróttinssaga væri kristin allegóría.
Tolkien þver­tók fyr­ir að Hringa­drótt­ins­saga væri krist­in allegór­ía. Rob Wicks/​Unsplash

Stow-on-the-World: Gloucesters­hire, Eng­land

Tolkien var trúaður maður og þrátt fyr­ir að hafa þver­tekið fyr­ir að Hringa­drótt­ins­saga væri krist­in allegór­ía er verkið gegn­sýrt af and­leg­um til­vís­un­um. 

Þegar Tolkien var pró­fess­or við Oxford-há­skóla heim­sótti hann gjarn­an nær­liggj­andi svæði, Cotswold, þar sem eru gull­steinsþorp, aflíðandi hlíðar og fal­leg­ar kirkj­ur.

Ein af kirkj­un­um, St. Edw­ar­d's-kirkja, hef­ur lengi verið eyrna­merkt Tolkien. Norður­h­urð kirkj­unn­ar er skor­in úr mass­í­v­um, negld­um viði, með boga­dreg­inni um­gjörð og olíulampa sem hang­ir fyr­ir ofan hana. Til beggja hliða eru yew-tré sem gróður­sett voru fyr­ir þrem­ur öld­um og hafa vaxið við kirkj­una.

Dyrn­ar á St. Edw­ards líkj­ast teikn­ing­um Tolkiens af Dur­in-dyr­un­um að falda inn­gang­in­um í dverga­borg­ina Khazad-dûm.

El Teide í öllu sínu veldi.
El Teide í öllu sínu veldi. Michal Mrozek/​Unsplash

Teide-þjóðgarður­inn: Teneri­fe, Spánn

Tungllík­ar eyðimerk­ur Teide-þjóðgarðsins á Teneri­fe eru áber­andi í nýj­ustu þáttaröðinni The Ring of Power og er hrjóstr­ug auðnin sögu­svið hins dul­ar­fulla Stran­ger, minn­is­lausa galdra­manns­ins, sem ferðast þar um með tvo hobbita. 

Frum­byggj­ar Guanche á Teneri­fe trúðu því að Teide væri hliðið að und­ir­heim­um hins ill­gjarna Guðs Guayota. Teide virðist því hafa verið full­kom­in staðsetn­ing fyr­ir tök­urn­ar og ríki Rhûn, sem í verk­um Tolkiens er dul­ar­fullt svæði siðferðis­legr­ar spill­ing­ar og myrkra galdra.

Fiordland á Nýja-Sjálandi, en leikstjóri kvikmyndanna um Hringadróttinssögu, Peter Jackson …
Fior­d­land á Nýja-Sjálandi, en leik­stjóri kvik­mynd­anna um Hringa­drótt­ins­sögu, Peter Jackson er ný­sjá­lensk­ur. Samu­el Ferr­ara/​Unsplash

Fior­d­land: Suður­eyj­ar, Nýja-Sjá­land

Öll kvik­myndasería Hringa­drótt­ins­sögu var tek­in upp á Nýja-Sjálandi, heimalandi leik­stjór­ans Peters Jacksons. Árnar og skóg­lendið í Fior­d­land, svæði með græn­um hæðum og snævi þökt­um fjöll­um sem teygja sig niður í jök­ulskorna firði og vík­ur, eru áber­andi í kvik­mynd­un­um. 

Þeir staðir í Fior­d­land sem koma fram í kvik­mynd­un­um eru m.a. Fangorn-skóg­ur, heim­kynni risa­stóru talandi trjánna Ents og Waiau-áin, sem er Andu­in-áin í verk­um Tolkiens og er lengsta áin í Middle-Earth sem birt­ist í fyrstu loft­mynd­inni af The Fellows­hip of the Ring

Dulúðugt landslag Nýja-Sjálands.
Dulúðugt lands­lag Nýja-Sjá­lands. Casey Horner/​Unsplash

BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert