Nóttin á 290 þúsund krónur í afmælisvillu Ásgeirs Kolbeins

Par­típ­inn­inn og at­hafnamaður­inn, Ásgeir Kol­beins­son, held­ur upp á fimm­tugsaf­mælið sitt á Teneri­fe um helg­ina. Von er á yfir hundrað gest­um í af­mælið og hef­ur Ásgeir leigt glæsi­lega villu fyr­ir veisl­una.

Ásgeir hef­ur lengi verið þekkt­ur í ís­lensku sam­kvæm­is­lífi og hef­ur komið að ófá­um viðburðum í gegn­um tíðina. Hann rak og átti skemmti­staðinn Aust­ur á sín­um tíma. 

Húsið sem hann leig­ir heit­ir Finca La Rosa de Los Vientos og er staðsett á Adeje á suður­strönd Teneri­fe. Húsið er 2.400 fm að stærð. Í hús­inu eru sjö svefn­her­bergi, tvær stof­ur, lík­ams­rækt og níu baðher­bergi. Í hús­inu má finna stóra sund­laug úti með út­sýni yfir fjöll­in, heit­an pott, gufu og litla sund­laug inni. Einnig er afþrey­ing í boði eins og bill­i­ard-borð og hægt er að setja upp kvik­mynda­sal úti á ver­önd­inni.

Fimm daga lág­marks­dvöl

Stíll húss­ins að inn­an er íburðamik­ill en þar mæt­ir dökk­ur viður marm­ara- og granít­borðplöt­um. Hús­gögn­in eru einnig úr dökk­um við og kirsu­berjavið og mikið er um leður­klædd hús­gögn.

Á þess­um árs­tíma kost­ar nótt­in í kring­um 290 þúsund krón­ur og verður að leigja húsið í lág­mark fimm daga í einu. 

Gestir verða að muna eftir sundfötum.
Gest­ir verða að muna eft­ir sund­föt­um. Ljós­mynd/​Skjá­skot
Útisvæðið er dásamlegt.
Úti­svæðið er dá­sam­legt. Ljós­mynd/​Skjá­skot
Vínrauðir og leðurklæddir stólar í einu herberginu.
Vín­rauðir og leður­klædd­ir stól­ar í einu her­berg­inu. Ljós­mynd/​Skjá­skot
Það má taka hvíld frá sólinni og heimsækja billiard-borðið.
Það má taka hvíld frá sól­inni og heim­sækja bill­i­ard-borðið. Ljós­mynd/​Skjá­skot
Gufubað og lítil laug inni.
Gufubað og lít­il laug inni. Ljós­mynd/​Skjá­skot
Það er hægt að ganga beint út á veröndina frá …
Það er hægt að ganga beint út á ver­önd­ina frá einu baðher­berg­inu. Ljós­mynd/​Skjá­skot
Í húsinu eru sjö svefnherbergi.
Í hús­inu eru sjö svefn­her­bergi. Ljós­mynd/​Skjá­skot
Það er ýmislegt hægt að gera í villunni.
Það er ým­is­legt hægt að gera í vill­unni. Ljós­mynd/​Skjá­skot
Spænskur stíll ræður ríkjum í villunni.
Spænsk­ur stíll ræður ríkj­um í vill­unni. Ljós­mynd/​Skjá­skot
Útsýnið er ekki af verri endanum ef gestir hyggjast fara …
Útsýnið er ekki af verri end­an­um ef gest­ir hyggj­ast fara í kvöldsund. Ljós­mynd/​Skjá­skot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert