10 vinsælustu borgirnar 2025

Það er alltaf líf og fjör í Lundúnum.
Það er alltaf líf og fjör í Lundúnum. Ljósmynd/Sabrina Mazzeo

Höfuðborg Bret­lands, Lund­ún­ir, hef­ur verið val­in vin­sæl­asti áfangastaður í heimi af ferðavefn­um Tripa­dvisor. Evr­ópu­borg­in tek­ur topp­sætið af Dúbaí sem hafði haldið topp­sæt­inu und­an­far­in tvö ár.

Ferðavef­ur­inn gaf út sinn ár­lega lista yfir vin­sæl­ustu áfangastaðina á fimmtu­dag. Valið bygg­ist á um­sögn­um not­enda vefsíðunn­ar yfir síðustu tólf mánuði.

Fjöl­marg­ir not­end­ur hrósuðu Lund­ún­um fyr­ir fjöl­breytta mat­ar­menn­ingu, heill­andi and­rúms­loft, kurt­eisi borg­ar­búa og ríkt menn­ing­ar­líf.

Borg­ar­stjóri Lund­úna, Sa­diq Khan, sendi frá sér yf­ir­lýs­ingu eft­ir að valið var gert op­in­bert.

„Lund­ún­ir eru án efa besta borg í heimi til að heim­sækja. Hún laðar að sér millj­ón­ir ferðamanna ár hvert sem all­ir eru undr­andi yfir öllu því sem stór­borg­in okk­ar hef­ur upp á að bjóða.”

Markaðstorg í borginni Marrakesh í Marokkó.
Markaðstorg í borg­inni Marra­kesh í Mar­okkó. Ljós­mynd/​AFP

Í tíu efstu sæt­un­um eru:

  1. Lund­ún­ir
  2. Balí
  3. Dúbaí
  4. Sikiley
  5. Par­ís
  6. Róm
  7. Hanoi
  8. Marra­kesh
  9. Krít
  10. Bang­kok
París í Frakklandi nýtur alltaf vinsælda.
Par­ís í Frakklandi nýt­ur alltaf vin­sælda. Unsplash
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert