Leiðin að ekta lúxus og dekri í Dúbaí

Dúbaí. Þarna sést hæsti turn í heimi, Burj Khalifa.
Dúbaí. Þarna sést hæsti turn í heimi, Burj Khalifa. ZQ Lee/Unsplash

Á aðeins hálfri öld hef­ur Dúbaí, í ar­ab­ísku fursta­dæmun­um, þró­ast úr litlu sjáv­arþorpi yfir í blóm­lega stór­borg með glamúr og lúx­us. Þar er m.a. að finna Burj Khalifa, hæsta turn heims, Deep Dive Dubaí, dýpstu sund­laug í heimi og nú er verið að byggja risa­versl­un­ar­miðstöðina Dubaí Square, fyr­ir tvo millj­arða banda­ríkja­dali. 

Árið 2024 var Dúbaí út­nefnt besti heilsu­linda­áfangastaður í heimi á World Spa Aw­ards. 

Huda Katt­an, stofn­andi Huda Beauty, hef­ur verið bú­sett í borg­inni frá 2008 og þekk­ir vel til þegar kem­ur að lúx­us og dekri. Sjálf ferðast hún um víða ver­öld vegna snyrti­vörumerk­is síns en er með höfuðstöðvarn­ar í Dúbaí. Hún seg­ist nýta tím­ann vel þegar hann gefst og ver hon­um þá í heilsu­lind, nuddi og öðru dekri. Á BBC Tra­vel fer hún yfir sinn upp­á­halds lúx­us og hvar sé besta dekrið. 

Huda Kattan er stofnandi snyrtivörumerkisins Huda Beauty og þekkir vel …
Huda Katt­an er stofn­andi snyrti­vörumerk­is­ins Huda Beauty og þekk­ir vel til lúx­uss í Dúbaí. Skjá­skot/​In­sta­gram

1. Besta nuddið: Gu­erlain Spa

Katt­an fór í sitt fyrsta nudd í Dúbaí fyr­ir sex­tán árum og varð sam­stund­is háð því. Hún seg­ir að all­ir geti fundið eitt­hvað við sitt hæfi, hvort sem er í heilsu­lind eða heim­anuddi. The Gu­erlain Spa býður upp á laufi skrýdd­an ar­ab­ísk­an garð með gos­brunn­um og glæsi­legri mót­töku og lít­illi Gu­erlain-versl­un. Þar fer hún yf­ir­leitt í djúp­vefj­anudd á meðan eig­inmaður henn­ar, kaup­sýslumaður­inn Christoph­er Goncalo, kýs frek­ar taí­lenskt nudd. 

Guerlain Spa.
Gu­erlain Spa. Skjá­skot/​In­sta­gram

2. Besta tyrk­neska baðið: Talise Ottom­an Spa

Katt­an mæl­ir með Talise Ottom­an-heilsu­lind­inni fyr­ir tyrk­neskt bað (hamm­am). Þar seg­ist hún hafa fundið bestu upp­lif­un­ina. Þar hefst hreins­un­ar­at­höfn­in í marm­ara­hvelf­ingu skreyttri með mósaík­flís­um. Gest­ir slaka á, á upp­hituðu marm­ara­rúmi og eru skrúbbaðir á meðan. Gest­ir fá hun­angs-, lár­viðar- eða myntumaska á eft­ir og geta slakað á í einka­her­bergj­um (maj­l­is) sem um­lykja stóra sund­laug. 

Talise Ottoman Spa.
Talise Ottom­an Spa. Skjá­skot/​In­sta­gram

3. Að kaupa ar­ab­ískt ilm­vatn

Ef Katt­an ætl­ar virki­lega að dekra við skiln­ing­ar­vit­in heim­sæk­ir hún ilm­hús. Henn­ar upp­á­haldsvörumerki er Abd­ul Samad Al Qurashi, ekki ein­ung­is fyr­ir ilm­inn sjálf­an held­ur einnig fyr­ir fal­leg­ar umbúðir. Abd­ul Samad Al Qurashi-ilm­irn­ir eru í takt við tæl­andi ilm sem Bedúín­ar hafa búið til um ald­ir, með blandi af oud (moskus, reyk og munúðarfull­um ilm) og reyk­elsi. Hún ít­rek­ar að ekki þurfa all­ir ilm­ir að kosta hand­legg held­ur er einnig hægt að fara á markaði og kaupa minna þekkt merki. 

Kattan er dugleg að fara í ilmhús og versla himneska …
Katt­an er dug­leg að fara í ilm­hús og versla him­neska ilmi. Katal­in Sal­les/​Unsplash

4. Best fyr­ir glitrandi lúx­us: Ooak­st­ones

Dúbaí hef­ur orðið vin­sæll áfangastaður til að kaupa lúx­us­skart­gripi. Þegar Katt­an þráir eitt­hvað glitrandi þá splæs­ir hún í skraut­krist­alla. Ein upp­á­haldsversl­un Katt­an sem sel­ur skraut­krist­alla er Ooak­st­ones eða One Of A Kind stones. Versl­un­in er staðsett í lista­hverf­inu á Alserkal Avenue og býður upp á sér­stakt úr­val krist­alla, allt frá hand­verks­skarti til heim­il­is­skreyt­inga.

One Of A Kind stones. Kattan finnst fátt skemmtilegra en …
One Of A Kind stones. Katt­an finnst fátt skemmti­legra en að skreyta heim­ilið með skraut­kristöll­um. Skjá­skot/​In­sta­gram

5. Besta útislök­un­in: SAL-strand­klúbbur­inn

Þar er hægt að horfa á kvik­mynd­ir ofan í sund­laug, hvíla sig í loft­kældu sól­skýli og setj­ast í sól­stóla skreytta há­tísku­merkj­um, svo eitt­hvað sé nefnt. SAL-strand­klúbbur­inn er á Burj Al Arab-hót­el­inu með út­sýni yfir Persa­flóa. Klúbbur­inn er op­inn árið um kring, þótt slík­ir klúbb­ar séu vin­sælli yfir kald­ari mánuðina. Mat­seðill­inn er ekki af verri end­an­um; kæld­ir for­rétt­ir og Miðjarðar­hafs­inn­blásn­ir sjáv­ar­rétt­ir, lúxuskokteil­ar og eft­ir­rétt­ir. Staður­inn er op­inn langt fram á kvöld svo hægt sé að njóta sól­set­urs­ins við Persa­flóa og fá sér sund­sprett und­ir stjörnu­björt­um himn­in­um. 

SAL-strandklúbburinn er á Burj Al Arab-hótelinu með útsýni út á …
SAL-strand­klúbbur­inn er á Burj Al Arab-hót­el­inu með út­sýni út á Persa­flóa. Alim/​Unsplash

BBC Tra­vel

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert