Viðskiptafarrými tekin yfir og fyrsta farrými úrelt

Fyrsta farrými er að verða úrelt samkvæmt Travel and Leisure …
Fyrsta farrými er að verða úrelt samkvæmt Travel and Leisure og nú eru viðskiptafarrýmin tekin yfir. Andrea Natali/Unsplash

Á 21. öld­inni hafa svo­kölluð viðskiptafar­rými verið færð upp um gæði hjá fjölda flug­fé­laga. Áður fyrr voru viðskiptafar­rými eins kon­ar milli­bil milli ann­ars far­rým­is og fyrsta far­rým­is. Í dag er því öðru­vísi farið þar sem mörg af flug­fé­lög­um heims­ins hafa af­numið fyrsta far­rýmið og eru nú ein­ung­is með annað far­rými og viðskiptafar­rými. Á ferðavefn­um Tra­vel and Leisure var gerð út­tekt á slík­um far­rým­um.

Qatar Airways, löngum talið með mestu gæðin um borð.
Qat­ar Airways, löng­um talið með mestu gæðin um borð. Skjá­skot/​In­sta­gram

Qat­ar Airways

Miðaust­ur­landa­fé­lagið Qat­ar Airways er gjarn­an talið einn mesti lúx­us­ferðamát­inn. Í flug­vél A350 eru 46 sæti á bus­iness class af­mörkuð með skil­rúmi svo farþegi get­ur notið fyllsta næðis. Far­ang­ur er í geymslu­hólf­um inni í rým­inu svo farþegar geta auðveld­lega teygt sig í hluti án þess að losa beltið. Mat­ur­inn er til fyr­ir­mynd­ar og við inn­gang­inn er út­deilt nátt­föt­um og inni­skóm sem hægt er að smeygja sér í.

ANA 777-300ER „Her­bergið“

Nýj­asta viðskiptafar­rými All Nippon Airways und­ir­strik­ar í raun hve úr­elt fyrsta far­rými er orðið. Far­rýmið ein­kenn­ist af svít­um sem voru hannaðar af arki­tekt­in­um Kengu Kuma. Mini­malísk hönn­un með mjúk­um sæt­um og ein­stak­lega góðu plássi. Mat­seðill­inn er heil­næm­ari en þekk­ist ann­ars staðar og 24 tommu skjár fylg­ir hverri svítu.

Viðskiptafarrými japanska flugfélagsins All Nippon Airlines.
Viðskiptafar­rými jap­anska flug­fé­lags­ins All Nippon Air­lines. Skjá­skot/​In­sta­gram

Singa­pore Air­lines 

Lengsta flug sem í heimi er frá Newark til Singa­pore, með alls nítj­án klukku­stund­ir í lofti. Sem bet­ur fer er viðskiptafar­rými fé­lags­ins, A350-900ULR, einnig eitt það þægi­leg­asta. Hægt er að losa sæt­is­bakið aft­ur svo sætið breyt­ist í rúm. Hægt er að panta sér mat hvenær sem er meðan á flug­inu stend­ur en mat­seðill­inn er einn sá fjöl­breytt­asti í háloft­un­um.

Jet­Blue

Viðskiptafar­rýmið Mint Studio fór fyrst í notk­un 2021. Aflokað rými fyr­ir hvern farþega með góðu plássi. Rúmið í rým­inu er nógu stórt til að bylta sér í svefni. Í sætis­örm­um eru vír­laus­ir hleðslu­púðar og hægt er að hreyfa sjón­varps­skjá­inn eft­ir því í hvaða stell­ingu viðkom­andi er. Mat­ur og drykk­ir jafn­ast á við flotta bari og veit­ingastaði í New York. Eini ágall­inn er að flugið er mjög tak­markað og er ein­ung­is flogið til London og nokk­urra áfangastaða í Mið- og Suður-Am­er­íku.

Ameríska flugfélagið JetBlue.
Am­er­íska flug­fé­lagið Jet­Blue. Skjá­skot/​In­sta­gram

Önnur flug­fé­lög sem nefnd eru í grein­inni á Tra­vel and Leisure eru Delta með A350-svít­urn­ar og Emira­tes A380-viðskiptafar­rým­in.

Tra­vel and Leisure

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert