Icelandair hefur flug til Miami

Nýr Airbus-þota Icelandair.
Nýr Airbus-þota Icelandair. mbl.is/Sigurður Bogi

Icelanda­ir hef­ur bætt nýj­um áfangastað við leiðakerfi sitt, Miami í Flórída­ríki í Banda­ríkj­un­um. Flogið verður til borg­ar­inn­ar þris­var í viku, á þriðju­dög­um, fimmtu­dög­um og laug­ar­dög­um, frá 25. októ­ber og út mars 2026. Flug­tími til Miami er um það bil átta klukku­stund­ir á Air­bus A321LR.

Flórída hef­ur lengi verið vin­sæll vetr­aráfangastaður Íslend­inga en Icelanda­ir hef­ur um ára­tuga­skeið flogið til Or­lando. Nú bæt­ist Miami við leiðakerfi fé­lags­ins sem 19. áfangastaður­inn í Norður-Am­er­íku. Borg­in er þekkt fyr­ir fal­leg­ar strend­ur, lit­ríka menn­ingu og fjör­ugt næt­ur­líf.  

„Við erum mjög spennt fyr­ir því að hefja flug til Miami og ég veit að marg­ir Íslend­ing­ar munu fagna þess­um nýja, sól­ríka áfangastað í Flórída. Nýju Air­bus-vél­arn­ar, sem eru bæði lang­dræg­ar og spar­neytn­ar, gera okk­ur kleift að bæta við nýj­um og spenn­andi áfanga­stöðum og er Miami gott dæmi um það.

Flug­leiðin opn­ar auk þess öfl­ug­ar teng­ing­ar fyr­ir íbúa Miami til 34 áfangastaða okk­ar í Evr­ópu, um Ísland og sömu­leiðis fyr­ir Evr­ópu­búa til Miami,“ seg­ir Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelanda­ir.

Miami er þekkt fyrir iðandi næturlíf.
Miami er þekkt fyr­ir iðandi næt­ur­líf. Unsplash/​aur­ora.kreativ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert