Það getur verið erfitt að sitja í flugvél. Margir hafa upplifað að lenda við hliðina á manneskju sem gerði þeim lífið um borð aðeins verra. Þráður á Reddit snýst um einmitt þetta - verstu sætisfélagana.
Hér á eftir fara helstu sögur fólks um samferðamenn um borð í flugvélum:
„Einu sinni sat ég hjá manni sem leysti vind alla ferðina. Og ég meina stöðugt, fyrra fretið var varla búið áður en nýtt hófst. Gasmengunin magnaðist.“
„Fólkið fyrir framan mig var par á fertugsaldri. Það var í sleik alla ferðina auk þess sem hann sleikti ennið hennar nokkrum sinnum.“
„Ég lenti einu sinni í of vinalegu fólki. Það gekk eitt gott til en þau voru drukkin og gátu ekki hætt að tala.“
„Konan sem sat við hlið mér pantaði sér vín og varði svo næstu fimm klukkustundum í að segja mér alla ævisögu sína. Þegar hún fór á klósettið þá kveikti ég á lesljósinu, tók upp bók og þóttist lesa. Þegar hún kom til baka þá slökkti hún á ljósinu mínu og hélt áfram með söguna sína.“
„Eldri maður sat hjá mér og ég var með heyrnartólin í eyrunum. Hann byrjar að tala við mig og dregur fram spil og sýnir mér öll spilatrixin sín. Hann var þá mikill áhugamaður um töfra.“
„Einn ákvað að klippa neglurnar sínar um borð í vélinni, fingur- og táneglur.“
„Ég sat á milli barns og foreldris. Barnið var með fartölvu og foreldrið þurfti sífellt að taka fartölvuna til að skipta um þátt og rétta svo aftur barninu. Þetta gekk svona á nokkurra mínútna fresti alla ferðina.“