Rómantískur bústaður fjarri öllu til leigu

Mælt er með því að nálgast bústaðinn á fjórhjóladrifnum bíl …
Mælt er með því að nálgast bústaðinn á fjórhjóladrifnum bíl yfir vetrartímann. Samsett mynd

Kolsstaðir er lít­ill bú­staður til leigu á vefsíðunni AirBnb. Bú­staður­inn er kjör­inn fyr­ir þá sem þurfa frið frá öllu áreiti eða þá sem vilja kom­ast í róm­an­tíska ferð út á land. Næsti bær við bú­staðinn er Búðardal­ur. 

Bú­staður­inn er inn­réttaður á hlý­leg­an hátt í sveita­stíl. Neðri hæðin er 35 fm og efri hæðin er 20 fm svo það skap­ast mik­il nánd á milli þeirra sem dvelja í hon­um. Bú­staður­inn er um­kringd­ur nátt­úru. Mælt er með því að vera á fjór­hjóla­drifn­um bíl ef heim­sókn­in á sér stað yfir vetr­ar­tím­ann.

Kamína í stofunni.
Kamína í stof­unni. Skjá­skot/​AirBnb
Svefnherbergið er lítið og hlýlegt.
Svefn­her­bergið er lítið og hlý­legt. Skjá­skot/​AirBnb
Þarna má sitja og skrifa í dagbók.
Þarna má sitja og skrifa í dag­bók. Skjá­skot/​AirBnb
Bústaðurinn er innréttaður í sveitastíl.
Bú­staður­inn er inn­réttaður í sveita­stíl. Skjá­skot/​AirBnb
Náttúran umlykur bústaðinn.
Nátt­úr­an um­lyk­ur bú­staðinn. Skjá­skot/​AirBnb
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert