Inga Lind fann sinn innri frið á Balí

Líkt og í draumi.
Líkt og í draumi. Samsett mynd

Inga Lind Karls­dótt­ir, fram­leiðandi og fjöl­miðlakona, er á heim­leið eft­ir að hafa eytt síðustu dög­um á indó­nes­ísku eyj­unni Balí þar sem hún upp­götvaði nýj­an menn­ing­ar­heim og öðlaðist innri frið.

Inga Lind sýndi frá ferðalagi sínu í færslu á In­sta­gram-síðu sinni í morg­un og af mynd­um að dæma þá nýtti hún tíma sinn á þess­um draum­kennda stað mjög vel.

„Kona fór og fann sinn innri frið á Balí. Hlaut þar bless­un, gleði, slök­un, sól, al­vöru rign­ingu, hita, hvíld og mik­il­væg­an lær­dóm um ótrú­leg­ustu hluti.

Full af þakk­læti er ég á leiðinni heim með þetta helsta. Sjá­umst!“, skrifaði hún við myndaseríu sem sýn­ir hana meðal ann­ars njóta lífs­ins á strönd­inni, stunda jóga og æfa golfsveifl­una, en hún er þekkt fyr­ir að vera ansi öfl­ug á golf­vell­in­um og hef­ur sveiflað golf­kylf­unni í þó nokkr­um frí­um er­lend­is síðustu ár.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka