Kristín Pétursdóttir í „babymoon“ í Portúgal

Það væsir ekki um Kristínu Pétursdóttur þessa dagana.
Það væsir ekki um Kristínu Pétursdóttur þessa dagana. Samsett mynd

Leik­kon­an og sam­fé­lags­miðlastjarn­an Krist­ín Pét­urs­dótt­ir er stödd í Lissa­bon, höfuðborg Portúgal, um þess­ar mund­ir ásamt sam­býl­is­manni sín­um, Þor­vari Bjarma Harðar­syni hand­bolta­dóm­ara.

Parið sem á von á sínu fyrsta barni sam­an á næstu mánuðum skellti sér í svo­kallaða „ba­bymoon-ferð“, en slík­ar ferðir hafa notið mik­illa vin­sælda und­an­far­in miss­eri hjá verðandi for­eldr­um.

Krist­ín hef­ur verið dug­leg að sýna frá ferðalag­inu á In­sta­gram-síðu sinni og birti meðal ann­ars fal­leg­ar óléttu­mynd­ir af sér rölt­andi á strönd­inni.

„Beac­hy bumba,“ skrifaði hún við myndaserí­una.

Krist­ín og Þor­var Bjarmi greindu frá ólétt­unni í byrj­un des­em­ber. 

Krist­ín hef­ur verið mjög áber­andi síðustu ár, en hún lék meðal ann­ars í leik­sýn­ing­unni Mæður sem sýnd var í Borg­ar­leik­hús­inu. Hún nýt­ur einnig mik­illa vin­sælda á sam­fé­lags­miðlum, en hún er með yfir 21 þúsund fylgj­end­ur á In­sta­gram. Krist­ín á einn son úr fyrra sam­bandi.




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert