„Fyrsta flugið 90 ára“

Systurnar Jóhanna, Steinunn og Valdís brostu sínu breiðasta úr flugvélasætum …
Systurnar Jóhanna, Steinunn og Valdís brostu sínu breiðasta úr flugvélasætum sínum. Skjáskot/Instagram

Nýj­asta færsla ís­lenska flug­fé­lags­ins Play hef­ur held­ur bet­ur vakið at­hygli á Face­book og In­sta­gram í dag.

Play deildi skemmti­legri mynd af þrem­ur systr­um, þeim Jó­hönnu, Stein­unni og Val­dísi, í sæt­um sín­um í flug­vél fé­lags­ins, en þær eru á leiðinni á upp­á­haldsstað Íslend­inga, Teneri­fe, til að fagna 90 ára af­mæli Stein­unn­ar. 

Flug­ferðin er ein­stök fyr­ir af­mæl­is­barnið en þetta er fyrsta flug Stein­unn­ar, ótrú­legt en satt. 

„Fyrsta flugið 90 ára!

Við vor­um svo hepp­in að fá að fljúga systr­un­um Jó­hönnu, Stein­unni og Val­dísi til sól­ríku Teneri­fe í til­efni 90 ára af­mæl­is Stein­unn­ar og í fyrsta flugið henn­ar!

Þess­ar ynd­is­legu syst­ur fengu okk­ur til að brosa... og von­andi ykk­ur líka,“ stend­ur við færslu flug­fé­lags­ins á Face­book.

Ferðavef­ur­inn ósk­ar Stein­unni hjart­an­lega til ham­ingju með dag­inn og fyrstu flug­ferðina!

View this post on In­sta­gram

A post shared by PLAY air­lines (@playair­lines)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert