Eyjalífið fer fjölskyldunni einstaklega vel

Það væsir ekki um Neil Patrick Harris og fjölskyldu á …
Það væsir ekki um Neil Patrick Harris og fjölskyldu á Fídjíeyjum. Samsett mynd

Leik­ar­inn og fjöll­istamaður­inn Neil Pat­rick Harris er stadd­ur í fríi með fjöl­skyldu sinni á Fídjíeyj­um í Suður-Kyrra­hafi um þess­ar mund­ir.  

Harris, sem er einna þekkt­ast­ur fyr­ir hlut­verk sitt sem kvenna­bós­inn Barney Stin­son í banda­rísku gam­anþáttaröðinni How I Met Your Mot­her, gaf skemmti­lega inn­sýn í fjöl­skyldu­fríið á In­sta­gram-síðu sinni nú á dög­un­um og af mynd­um að dæma þá á eyja­lífið ansi vel við Harris og fjöl­skyldu.  

Harris er kvænt­ur leik­ar­an­um og mat­reiðslu­mann­in­um Dav­id Burt­ka. Þeir gengu í hjóna­band í sept­em­ber 2014 eft­ir tíu ára sam­band.

Harris og Burt­ka eignuðust tvíbura, Harper og Gi­deon, með aðstoð staðgöngumóður árið 2010 og hafa verið dug­leg­ir að sýna frá lífi fjöl­skyld­unn­ar á sam­fé­lags­miðlum síðustu ár. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by Neil Pat­rick Harris (@nph)

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert