Tveir hnúfubakar léku listir sínar í Faxaflóa

Vel þess virði!
Vel þess virði! Samsett mynd

Gest­ir um borð í hvala­skoðun­ar­skipi Eld­ing­ar fengu það sem þeir borguðu fyr­ir, og aðeins meira en það, þegar þeir héldu út á Faxa­flóa í þeirri von um að sjá hvali, höfr­unga og hnís­ur svamla í sjón­um í blíðviðrinu á sunnu­dag.

Eft­ir stutta sigl­ingu rak hóp­ur­inn aug­un í tvo hnúfu­baka sem voru að næra sig á ríku­legu fæðufram­boði í fló­an­um.

Hnúfu­bak­arn­ir léku list­ir sín­ar og gáfu ferðamönn­un­um sem og starfs­fólki Eld­ing­ar næg­an tíma til að fanga augna­blikið á filmu, en hval­irn­ir syntu báðir mjög ná­lægt bát­un­um og komu reglu­lega upp á yf­ir­borðið með gal­op­inn kjaft­inn.

Eld­ing deildi skemmti­legu mynd­skeiði frá ferðinni á In­sta­gram-síðu sinni.

Sjón er sögu rík­ari!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert