Heilræði fyrir söndugar tær

Allir elska góðar strendur.
Allir elska góðar strendur. Getty images

Sand­ur á milli tánna er ekki öll­um að skapi og mörg­um finnst óþægi­legt að geta ekki skolað fæt­urna áður en haldið er af stað af strönd­inni.

Ferðamaður hef­ur fundið ráð við þessu hvim­leiða vanda­máli en í mynd­bandi sem birt var á In­sta­gram seg­ir Liz Rich­ards (@dailyorg­inal­vids) frá því að hún komi alltaf með plast­poka á strönd­ina. 

Áður en hún hyggst fara af strönd­inni, fer hún að sjón­um og fyll­ir pok­ann af vatni. Svo stíg­ur hún í hann áður en hún fer í skóna sína. Þannig get­ur hún haldið áfram með dag­inn sinn með hreina fæt­ur.

Mörg­um hef­ur þótt þessi hug­mynd góð en einn fylgj­andi bætti þó um bet­ur og stakk upp á að fólk notaði líka barna­púður en þá loðir enn minna við fæt­urna. Aðrir benda hins veg­ar á mik­il­vægi þess að slaka á í frí­inu sínu og hætta að pæla í sandi á milli tánna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert