Ein af uppáhaldsleiguíbúðum notenda Airbnb er að finna á Tenerife, nánar tiltekið í höfuðborginni Santa Cruz á norðaustanverðri eyjunni. Íbúðin er með 4,98 í einkunn af fimm á síðunni.
Stofan í íbúðinni er stór og í öðrum hluta hennar eru tvö hengirúm þar sem hægt er að slaka á með stórbrotið sjávarútsýni fyrir augum. Í sama rými er borðstofan. Eldhúsið er í sérrými og þar er einnig borðaðstaða og allt til alls til matreiðslu.
Í svefnherberginu er eitt tvíbreitt rúm og salerni er inn af stofu. Við húsnæðið er rúmgott bílastæði en mælt er með að vera á bílaleigubíl á þessu svæði.
Í stofunni er 50 tommu skjár með aðgengi að Amazon Prime Video, Apple TV, Chromecast, Distney+, HBO Max og Netflix, m.a. Þá er einnig WiFi-nettenging.
Aðgengi er að þvottavél og þurrkara og í íbúðinni er einnig loftræstikerfi. Hægt er að kynna sér umsagnir gesta sem dvalið hafa í íbúðinni á heimasíðu Airbnb.