Rosaleg verslun á sumarfrísstað ríka fólksins

Glæsiverslun Chanel í Saint Tropez verður aðeins opin í sumar.
Glæsiverslun Chanel í Saint Tropez verður aðeins opin í sumar. Ljósmynd/Chanel

Það er al­gengt á meðal stærstu tísku­húsa heims að opna versl­an­ir á vin­sæl­ustu stöðunum þar sem ríka fólkið fer í frí. Þetta eru staðir eins og Suður-Frakk­land, ít­ölsku alp­arn­ir eða Asp­en í Banda­ríkj­un­um. 

Franska há­tísku­húsið Chanel opnaði versl­un á dög­un­um í nýend­urupp­gerðu húsi í Saint-Tropez í Frakklandi. Versl­un­in hef­ur verið gerð upp eins og lúx­us­gist­ing á frönsku sveita­setri. Inn­an­hús­hönn­un­in er í takt við La Pausa, sveita­setr­inu sem var í eigu Gabrielle Coco Chanel sem var staðsett í Roqu­ebru­ne-Cap Mart­in í Frakklandi. 

Á fyrstu hæð versl­un­ar­inn­ar finn­urðu klass­ísk­ar tösk­ur frá merk­inu og aðra fylgi­hluti eins og klúta, skart­gripi og sólgler­augu. Á ann­arri hæð eru föt­in úr vor- og sum­ar­lín­um Chanel. 

Sveitasetrið er nýuppgert.
Sveita­setrið er ný­upp­gert. Ljós­mynd/​Chanel
Verslunin er aðallega fyrir ríka fólkið í sumarfríi.
Versl­un­in er aðallega fyr­ir ríka fólkið í sum­ar­fríi. Ljós­mynd/​Chanel
Aðkoman er glæsileg.
Aðkom­an er glæsi­leg. Ljós­mynd/​Chanel
Ef að skórnir gleymast heima má rjúka í Chanel-verslunina og …
Ef að skórn­ir gleym­ast heima má rjúka í Chanel-versl­un­ina og fá aðra. Ljós­mynd/​Chanel
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert