Þórdís Lóa hefur öðlast nýtt líf

Þórdís Lóa er komin í hörkuform.
Þórdís Lóa er komin í hörkuform. Ljósmynd/Aðsend

Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir, odd­viti Viðreisn­ar í Reykja­vík og stjórn­ar­formaður Faxa­flóa­hafna, fór ásamt glæsi­leg­um hópi kvenna í hjóla­ferð og sigl­ingu um strend­ur Króa­tíu ný­verið. Var þetta fyrsta hreyfi­ferð stjórn­mála­kon­unn­ar eft­ir að hún gekkst und­ir liðskiptaaðgerð haustið 2023, en hún var búin að bíða lengi eft­ir að kom­ast í aðgerðina.

„Já, ég var al­veg staðráðin í að æfa nýja hnéð vel og mætti af krafti í rækt­ina þegar veik­inda­leyfi og end­ur­hæf­ingu lauk. Þessi gamla skíða- og hand­bolta­kempa ætlaði sko ekki að láta eins og einn gervilið stoppa sig.“

Stórglæsilegur hópur!
Stór­glæsi­leg­ur hóp­ur! Ljós­mynd/​Aðsend

Hvernig er að vera kom­in með stál­hné?

„Það er al­veg skrítið að vera kom­in með stál­hné en maður verður bara að hafa húm­or fyr­ir því.“

Aðspurð seg­ist Þór­dís Lóa hafa farið aðeins fram úr sér til að byrja með.

„Þetta byrjaði ekki vel!

Ég skráði mig á hjóla­nám­skeið en það fór ekki bet­ur en svo að ég náði að mæta í einn tíma því ég fór aðeins fram úr mér. Ég var að hlaupa með einn af ömmu-þríburun­um út í bíl til að koma hon­um fyr­ir í barn­bíl­stól og tókst ekki bet­ur en svo að ég skellti hnénu í lás og endaði stokk­bólg­in og svekkt. En eins og maður seg­ir: Fall er far­ar­heill.“

Þór­dís Lóa þurfti ekki að hugsa sig lengi um þegar föður­syst­ir henn­ar lagði til að þær færu í hjóla­ferð.

„Já, það hljómaði mjög vel. Ég var búin að vera dug­leg í rækt­inni, bæði að hjóla og lyfta, og vildi ólm ögra mér og nýja hnénu.“

Þórdís Lóa hefur verið á heljarinnar heilsuferðalagi.
Þór­dís Lóa hef­ur verið á helj­ar­inn­ar heilsu­ferðalagi. Ljós­mynd/​Aðsend

Hjóluðu á dag­inn og skemmtu sér á kvöld­in

Þór­dís Lóa ferðaðist til Króa­tíu ásamt 32 kon­um.

„Þetta var dá­sam­leg ferð. Við sigld­um á milli eyja, hjóluðum á dag­inn og skemmt­um okk­ur á kvöld­in. Við klædd­um okk­ur meðal ann­ars upp í anda The Great Gats­by sem var ótrú­lega gam­an. 

Þórdís Lóa tók sig vel út á The Great Gatsby-kvöldinu.
Þór­dís Lóa tók sig vel út á The Great Gats­by-kvöld­inu. Ljós­mynd/​Aðsend

Aðspurð seg­ir Þór­dís Lóa hnéð hafa staðist öll próf.

„Já, held­ur bet­ur. Hnéð stóðst öll próf!

Svona liðskipti eru mik­il lífs­gæði og þetta hefði aldrei gengið með laskaða hnéið mitt. Ég hef svo sann­ar­lega öðlast nýtt líf.”

Það var mikil stemning í ferðinni.
Það var mik­il stemn­ing í ferðinni. Ljós­mynd/​Aðsend

„Lóa mjóa“

Þór­dís Lóa ákvað að taka sig í gegn fyr­ir ör­fá­um árum í þeirri von um að koma heils­unni og ork­unni í góðan far­veg. Blaðamaður for­vitnaðist aðeins um lífstíls­breyt­ing­una.

„Já, það er rétt. Ég hef verið í átaki sem fjöl­skyld­an kall­ar „Lóa mjóa“ en það geng­ur fyrst og fremst út á það að kom­ast í kjörþyngd á ný. Ég hef fengið frá­bær­an stuðning frá lýðheilsu­lækn­um, nær­ing­ar­fræðing­um og þjálf­ur­um - og síðast en ekki síst frá fjöl­skyld­unni.“

Þórdís Lóa kíkti aðeins á ströndina.
Þór­dís Lóa kíkti aðeins á strönd­ina. Ljós­mynd/​Aðsend

Þór­dís Lóa byrjaði að þyngj­ast þegar hún greind­ist með lungna­sjúk­dóm í miðjum kór­ónu­veirufar­aldr­in­um.

„Ég var sett á stera, byrjaði í lyfjameðferð og þyngd­ist mikið í kjöl­farið. Það reynd­ist mér ansi erfitt.“

Þór­dís Lóa seg­ir ferlið hafa kennt sér ým­is­legt.

„Um mitt ár 2022 ákvað ég að taka mig í gegn. Ég byrjaði að lyfta og hreyfa mig reglu­lega og öðlaðist hug­ar­ró. Mér tókst að breyta því sem mér hef­ur aldrei áður tek­ist og það er að vakna kl. 06 á morgn­ana og eiga sér­staka stund fyr­ir mig án vinnu, frétta, tölvu­pósts og alls áreit­is. Tím­ann á milli 06-08 á morgn­ana nýti ég til að skrifa æv­in­týra­sögu sem ég hef gengið með í mag­an­um í lang­an tíma,” seg­ir hún.

Hvernig hef­ur gengið?

„Þetta er búið að vera mikið „upp og niður“, fór hægt af stað en hef­ur gengið vel upp á síðkastið. Ég hef náð góðum tök­um á mataræðinu og hreyf­ingu og er kom­in í kjörþyngd. Ánægðust er ég með nýja hnéð sem virk­ar vel og ger­ir mér kleift að hreyfa mig.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert