„Borgin eilífa verður áfram lykiláfangastaður“

Það er vel hægt að ferðast á tveimur jafnsléttum um …
Það er vel hægt að ferðast á tveimur jafnsléttum um Róm og njóta þess helsta sem borgin hefur upp á að bjóða. Samsett mynd/L A L A S Z A/Fineas Anton /Victor Malyushev

Það er fátt jafn skemmti­legt og að fara fót­gang­andi um fram­andi staði. Gur­uWalk gerði ný­lega út­tekt á ókeyp­is göngu­ferðum víðs veg­ar um heim og um hvaða borg er skemmti­leg­ast og auðveld­ast að fara fót­gang­andi á ár­inu 2025.

Róm toppaði list­ann fyr­ir þetta ár. „Borg­in ei­lífa verður áfram lyk­i­láfangastaður fyr­ir ferðalanga sem heill­ast af sögu og fornri menn­ingu ... Kó­losse­um, Pant­heon og barokk­torg­in gera Róm að útisafni sem á skilið að vera rann­sakað, skref fyr­ir skref.“

Marg­ir af aðal­ferðamanna­stöðum Róm­ar eru staðsett­ir aðeins í göngu­fjar­lægð frá hver öðrum. Ítalska höfuðborg­in er einnig frek­ar flöt svo það er auðvelt að fara um á tveim­ur jafn­slétt­um.

Búdapest, höfuðborg Ung­verja­lands, er núm­er tvö á lista Gur­uWalk en arki­tekt­úr borg­ar­inn­ar bland­ast vel við víbrandi menn­ing­ar­sen­ur.

Aðrar borg­ir á topp tíu eru Madríd, Prag, Bar­sel­óna, Lissa­bon, London, Flórens, Amster­dam og Berlín. Það er áhuga­vert að sjá að aðeins Evr­ópu­borg­ir eru efst­ar á lista.

Daily Mail

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert