Bærinn Pasaia er lítið sjávarþorp í aðeins nokkurra kílómetra fjarlægð frá San Sebastian í Baskalandi á norður-Spáni. Þetta þykir falleg náttúruperla sem hefur verið laus við mikinn túrisma undanfarin ár.
Falleg náttúra er allt umlykjandi bæinn sem er staðsettur við sjóinn. Sjórinn er tær og fallega blár á litinn og er þetta kjörið umhverfi fyrir göngugarpa. Þarna er mikið af fallegum gönguleiðum og tekur aðeins tvær klukkustundir að ganga til San Sebastian.
Fatahönnuðurinn Paco Rabanne fæddist í bænum árið 1934 og einnig aðmírállinn Blas de Lezo sem fæddist árið 1689. Franska ljóðskáldið og rithöfundurinn Victor Hugo dvaldi einnig í bænum árum saman.
Í bænum þykir nauðsynlegt að bragða á spænskum sjávarréttum og drekka vín sem ræktuð eru í héraðinu. Bærinn var byggður í kringum eina götu og þykir einstaklega rómantískt að rölta um þröng stræti hans og velta arkitektúrnum fyrir sér.