Áslaug og Sacha leigja út hús á einkaeyjunni

Áslaug hefur notið lífsins á Svefneyjum með fjölskyldunni á sumrin.
Áslaug hefur notið lífsins á Svefneyjum með fjölskyldunni á sumrin. Samsett mynd

Áslaug Magnús­dótt­ir frum­kvöðull og kaup­sýslu­kona og unnusti henn­ar Sacha Tu­eni, leigja út lítið hús í Svefn­eyj­um á Breiðafirði. Húsið er aug­lýst til leigu á vefsíðunni AirBnb

Sacha keypti eyj­arn­ar árið 2021 og hafa notið lífs­ins í hæg­um takti þar á sumr­in. Nú ætla þau að leyfa öðrum að njóta sín í ný­upp­gerðu húsi. 

„Tím­inn stend­ur í stað í Svefn­eyj­um sem eru um­kringd­ar fjöll­um og jökl­um. Á sumr­in fljúga þúsund­ir lunda og yfir þrjá­tíu og sex fugla­teg­und­ir um him­in­inn á meðan hval­ir og höfr­ung­ar synda hjá. Eyj­arn­ar eru í aðeins fimmtán mín­útna báta­ferð frá Flat­ey,“ seg­ir í lýs­ing­unni um húsið. 

Húsið sem aug­lýst er til leigu er hlý­legt og er staðsett á aðal­eyj­unni. Húsið rúm­ar fimm manns í þrem­ur svefn­her­bergj­um. Húsið er inn­réttað á stíl­hrein­an hátt.

Sacha hef­ur starfað í tækni­geir­an­um í Banda­ríkj­un­um, meðal ann­ars hjá Face­book. Áslaug er frum­kvöðull í heimi tísk­unn­ar en hún er stofn­andi tísku­merk­is­ins Kötlu og fyrr­ver­andi for­stjóri Moda Oper­andi.

Húsið er innréttað á stílhreinan og hlýlegan hátt.
Húsið er inn­réttað á stíl­hrein­an og hlý­leg­an hátt. Skjá­skot/​AirBnb
Svartur SMEG-ísskápur stendur í eldhúsinu.
Svart­ur SMEG-ís­skáp­ur stend­ur í eld­hús­inu. Skjá­skot/​AirBnb
Útsýnið er dásamlegt úr húsinu.
Útsýnið er dá­sam­legt úr hús­inu. Skjá­skot/​AirBnb
Eitt svefnherbergjanna.
Eitt svefn­her­bergj­anna. Skjá­skot/​AirBnb
Heitur pottur og draumur.
Heit­ur pott­ur og draum­ur. Skjá­skot/​AirBnb
Húsið er staðsett á aðaleyjunni.
Húsið er staðsett á aðal­eyj­unni. Skjá­skot/​AirBnb
Á eyjunni er margt að gera.
Á eyj­unni er margt að gera. Skjá­skot/​AirBnb
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert