Yfir hundrað ára gamalt klassískt sjómannshús í Bolungarvík er auglýst til leigu á vefsíðunni AirBnb. Húsið er heillandi, málað í ljósbláum lit og með hvítu þaki. Eitt svefnherbergi er í húsinu með tvíbreiðu rúmi en einnig er svefnsófi í stofunni.
Húsið er uppgert í fallegum sveitastíl. Útsýnið nær yfir sjóinn en einnig til fjalla. Frá svefnloftinu nær útsýni yfir friðlandið á Hornströndum. Eldhúsið er vel búið með eldavél, ofni, ísskáp, örbylgjuofni og kaffivél.