Það er óhætt að segja að Leifur Harðarson sé ekki hinn hefðbundni hjólreiðamaður sem við þekkjum hér á landi og mætum á leið okkar í vinnuna, hvort sem er í sól eða rigningu. Hann ferðast um á töluvert meiri hraða en hinn hefðbundni hjólreiðamaður.
Leifur stundar það sem kallast fjallahjólreiðar.
Hann kynntist þessu stórskemmtilega jaðarsporti í miðjum kórónuveirufaraldrinum og varð fljótt alveg heillaður af því, sérstaklega eftir að hann fjárfesti í rafmagnshjóli.
Leifur er búsettur í Grundarfirði ásamt unnustu sinni, Aldísi Ásgeirsdóttur, og tveimur börnum þeirra, hinum fimm ára gamla Ísak Erni og Söru Dís, þriggja ára. Hann er skipstjóri á ferjunni Baldri, sem siglir daglega yfir Breiðafjörðinn frá Stykkishólmi á Snæfellsnesi til Brjánslækjar á Vestfjörðum, ásamt því að reka æfingastöð með unnustu sinni, og nýtir hvert einasta tækifæri til að festa á sig hjálminn og halda út í óbyggðirnar.
Hefurðu alltaf stundað útivist?
„Já, það má nú segja það. Ég er fæddur og uppalinn í Stykkishólmi og elst upp við fjallgöngur og stundaði um tíma klettaklifur. Útivistaráhuginn hefur því alltaf verið til staðar.“
Hvernig uppgötvaðir þú fjallahjólreiðar?
„Þetta er allt mági mínum að kenna. Nei, ég segi svona, en hann var sá sem kynnti mér fjallahjólreiðar. Mágur minn og systir mín fundu sér, líkt og margir aðrir, nýtt áhugamál til að dreifa huganum á meðan kórónuveirufaraldurinn geisaði og keyptu sér fjallahjól.
Þannig byrjaði þetta!
Ég fékk að prufukeyra hjól hjá þeim og smitaðist um leið. Þetta sama kvöld, að mig minnir, keyptum við Aldís okkur sams konar hjól.“
Fyrsta fjallahjólið hans Leifs var ekki rafmagnshjól, en það leið ekki á löngu þar til hann uppfærði græjuna yfir í rafmagnaða tryllitækið sem hann ferðast um á í dag.
Hvað varð til þess að þú féllst fyrir þessu sporti?
„Sko, þar á Youtube stóran þátt. Ég lá yfir myndböndum af mönnum á rafmagnshjólum í Ölpunum og þau kveiktu áhugann hjá mér. Þegar ég sá alla möguleikana sem fylgdu þessu sporti, þá bara vissi ég að þetta væri eitthvað fyrir mig.“
Leifur byrjaði á að kaupa rafmagnshjól handa unnustu sinni.
„Já, ég gerði þetta rétt,“ segir hann og hlær. „Ég keypti fyrst hjól handa henni og fór svo örfáum vikum seinna og splæsti í hjól handa mér.“
Eruð þið dugleg að fara saman út að hjóla?
„Við förum mjög reglulega út að hjóla með krakkana. Við erum með sérstök shotgun-sæti fyrir þau á hjólunum, en þá sitja þau framan á hjólunum og halda í stýrið, sem er mjög gaman fyrir okkur og þau.“
Það líður varla dagur án þess að Leifur þeysist af stað á hjólinu sínu.
„Ég vinn í eina viku og á frí þá næstu og nota þá daga vel. Í flestum fríum reyni ég að fara ferð suður til að hjóla, þar eru mun betri hjólastígar.“
Eru góðir hjólastígar í Grundarfirði?
„Nei, ég get nú ekki sagt það. Við erum að notast við gamla kindastíga,“ segir Leifur, en hann er á fullu að vinna að því að fá leyfi til að gera almennilega hjólastíga í hlíðinni.
„Ferlið er enn á byrjunarstigi en það gerist vonandi eitthvað fljótlega.“
Þér hefur tekist að smita aðra, ekki satt?
„Jú, ég er kominn með dágóðan hóp í kringum mig. Unnustan stundar þetta með mér, foreldrar mínir eiga hjól og að ég held tíu manns hér í bænum sem og nokkrir vinir í höfuðborginni. Ég er búinn að bæta ágætlega í rafmagnshjólaáhugamannahópinn.“
Aðspurður segist Leifur manískur í flestöllu, ef ekki öllu, sem hann tekur sér fyrir hendur, sérstaklega áhugamálunum.
„Já, ég verð mjög spenntur, mjög hratt. Ég hef gaman af því að ögra mér og fylgjast með bætingunum.“
Var engin hræðsla í byrjun?
„Nei, ég get ekki sagt það. En ég reyni að vera skynsamur og meta aðstæður vel.“
Hvað færðu út úr þessu?
„Ég hef komist að því á undanförnum árum að ég er spennusækinn og hef mest gaman af því að hjóla hratt niður bratta stíga og ögra mér, þannig fæ ég mest út úr ferðunum mínum.“
Áttu þér uppáhaldsstað?
„Ég verð að segja Þórsmörk. Stígarnir eru geggjaðir og landslagið er sér á parti. En svo er Reykjadalurinn ótrúlega skemmtilegur líka. Maður sem heitir Magne Kvam, stofnandi Ice Bike Adventures, hefur lagt gríðarlega mikla vinnu í að gera flott svæði þar.“
Hefurðu slasast?
„Nei, sjö, níu, þrettán, en minn tími mun líklega koma. Ég er dyggur stuðningsaðili björgunarsveitanna,“ segir Leifur og hlær. „Ég hef aldrei, ótrúlegt en satt, tognað né brotið bein á ævinni.“
Í lokin vildi blaðamaður aðeins forvitnast um hvað þurfi að hafa í huga til að byrja í fjallahjólreiðum.
„Ef fólk þekkir ekki einhvern sem er í þessu þá myndi ég bara ráðleggja fólki að prófa það sem er í boði, til dæmis að kíkja í Reykjadalinn til Magne, þar er hægt að fá rafmagnshjól á leigu og það eitt að setjast á rafmagnshjól er nóg til að heillast af þessu.“
Er nauðsynlegt að vera í góðu formi til að stunda fjallahjólreiðar?
„Ekki fyrir rafmagnshjólið, þú þarft varla að vera í formi til að byrja. Það er það sem er svo gott, þetta er búið að hleypa fullt af fólki inn í sport sem það gat kannski ekki áður stundað og ýtt þannig undir frekari áhuga sem hvetur fólk til að fara út og hreyfa sig.“