Lækkað verð á Exit-húsinu

Glæsileg orlofseign við sjóinn í Noregi.
Glæsileg orlofseign við sjóinn í Noregi.

Or­lofseign­in Villa Gran­um í Vin­ter­bro fyr­ir utan Osló í Nor­egi var sett á sölu í fyrra fyr­ir rúm­lega 563 millj­ón­ir króna. Húsið hef­ur hins veg­ar ekki selst enn þá og hef­ur verðið verið lækkað. Flest­ir þekkja húsið frá vin­sælu norsku þátt­un­um Exit.

Verðið lækkaði um 69 millj­ón­ir og fæst nú fyr­ir 494 millj­ón­ir króna. 

Það var karakt­er­inn Jeppe Schiøtt sem var eig­andi húss­ins í þátt­un­um. 

Fatafram­leiðand­inn Ørnu­lf Høyer er selj­andi húss­ins. 

„Þetta er lif­andi hús sem er dá­sam­legt að búa í. Hér höf­um við haldið upp á alla viðburði fjöl­skyld­unn­ar, við höf­um haldið brúðkaup og sum­ar­veisl­ur í garðinum. Í gegn­um árin höf­um við lært að njóta þess að þrífa eft­ir gest­ina okk­ar,“ sagði Høyer þegar húsið fór fyrst á sölu. 

Þó að flest­ir þekki húsið frá Exit þá var það líka notað í norsku þáttaserí­unni Mids­um­mer Nig­ht sem sýnd var á Net­flix. 

Húsið er í þrjá­tíu mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá Osló en þú kemst þangað á fimmtán mín­út­um með bát. Húsið er al­gjör perla sem hef­ur verið mikið end­ur­nýjað á síðustu árum. Aðal­húsið á eign­inni er frá ár­inu 1912 og þar að auki er báta­skýli og gesta­hús með eld­húsi og svefn­plássi. 

Í fjall­inu fyr­ir aft­an húsið hef­ur verið byggður vínkjall­ari og setu­stofa. 

Þetta er sann­kölluð lúxuseign og kjör­in fyr­ir þá sem vilja láta drauma sína ræt­ast.

E24

Þarna geturðu lifað þínu besta lúxuslífi.
Þarna get­urðu lifað þínu besta lúxus­lífi.
Eldhúsið er guðdómlegt.
Eld­húsið er guðdóm­legt.
Hver vill ekki borða morgunmatinn með þetta útsýni?
Hver vill ekki borða morg­un­mat­inn með þetta út­sýni?
Félagarnir í Exit í garðpartýi við húsið.
Fé­lag­arn­ir í Exit í garðpartýi við húsið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert